Besti "off map" veitingastaðurinn í heiminum

Veitingastaðurinn Slippurinn var í vikunni valinn einn af bestu “off map” veitingastöðum í heiminum af The world restaurant awards fyrir árið 2019. Slippurinn er fjölskyldurekinn veitingarstaður í Vestmannaeyjum sem notar staðbundið og árstíðarbundið hráefni. Gísli Matthías Auðunsson einn af eigendum Slippsins sagði í samtali við Eyjafréttir að þau væru virkilega ánægð með valið og að þetta hefði mjög hvetjandi áhrif.

„Þetta hefur auðvitað rosaleg hvetjandi áhrif. Bæði það að við finnum að það sé verið Að fylgjast með því sem við erum að gera og það er tekið eftir því. Þeir veitingastaðir sem eru tilnefndir eru margir hverjir þeir sem við lítum mest upp til. Þetta gefur okkur orku í að kafa dýpra í matargerð Vestmannaeyja,“ sagði Gísli.

Næsta sumar mun marka ákveðin tímamót hjá slippnum þegar þau opna dyrnar sjöunda sumarið í röð. „Með nýju eldhúsi og aukinni aðstöðu munum við bjóða upp á enn betri og áhugaverðari mat og enn betri þjónustu. Okkur hlakkar mikið til að opna í sjöunda sinn.“

 

Nýjustu fréttir

Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum
Lokaumferðin: ÍBV fær topplið Vals í heimsókn
„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.