Metfjöldi útkalla
LHG_flug_IMG_4031
TF-EIR, þyrla Gæslunnar á leið frá Eyjum sl. haust. Eyjar.net/Tryggvi Már

Flugdeild Landhelgisgæslunnar annaðist metfjölda útkalla árið 2023. Alls var flugdeildin kölluð 314 sinnum út í fyrra, bæði á þyrlum og flugvél sem er fimmtán útköllum meira en árið 2022.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út 303 sinnum og áhöfnin á TF-SIF í 11 skipti. 115 útköll voru á fyrsta forgangi, 136 á öðrum forgangi, 51 útkall var á þriðja og 12 á fjórða.

Rúmlega helmingur allra útkalla flugdeildar Landhelgisgæslunnar í fyrra voru vegna sjúkraflutninga á landi eða á sjó eða 161 útkall.

Fjöldi sjúklinga var samtals 183. Flest útköllin voru á Suðurlandi en þónokkur fjöldi var einnig á Suðurnesjum vegna jarðhræringa á Reykjanesi, segir í frétt á vef Landhelgisgæslunnar.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.