Stóra sviðið þakkar fyrir sig!
DSC_3251
Jón Jónsson og Ragga Gísla á sviði í Hörpu um helgina. Eyjar.net/Óskar P. Friðriksson

Eyjónleikarnir fóru fram í Eldborgarsal Hörpu á laugardagskvöld fyrir troðfullu húsi.

Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að óhætt sé að segja að sjaldan eða aldrei hafi önnur eins orka verið í þessum glæsilega sal og tónleikarnir tókust með miklum ágætum.

„Allir listamenn stóðu vel fyrir sínu og Eyjafólkið okkar var frábært. Sérstakar þakkir færum við Karla- og Kvennakórum Vestmannaeyja fyrir þeirra stóra framlag til tónleikanna, en þau voru á sviðinu allan tímann og voru hreint frábær.

Mikill fjöldi Grindvíkinga var í salnum í bland við Eyjafólk og aðra góða gesti. Viljum við nota tækifærið og þakka Síldarvinnslunni hf, Brim hf, Þorbirni hf í Grindavík og Vinnslustöð Vestmannaeyja-VSV fyrir stuðninginn í því verkefnið að bjóða Grindvíkingum á tónleikana.

Einnig færum við öllum sem hafa stutt okkur í þessu verkefni í gegnum árin.  Sérstakar þakkir fá Mari, Marý og Björgvin í Miðstöðinni, Stebbi og Björk og co í Skipalyftunni, Freyr og Elfa í Kapp, Binni, Andrea og co hjá Vinnslustöðinni-VSV og Hörður Orri og co hjá Herjólfi. Við gætum þetta ekki án ykkar og allra annarra sem lagt hafa hönd á plóg.

Hafið öll alúðarþakkir fyrir.

Guðrún og Daddi.“

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjar.net var á tónleikunum og má sjá hér að neðan fjöldann allan af myndum frá honum.

 

 

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.