Herjólfur ofh. tekur við rekstri Herjólfs
Undirskrift vegna Herjólfs ohf. í mars 2019. Grímur Gíslason og Lúðvík Bervinsson frá Herjólfi ohf. ásamt forstjóra Vegagerðarinnar Bergþóru Þorkelsdóttur Mynd:Vegagerðin

Vegagerðin og Herjólfur ohf. gerðu í dag með sér samkomulag vegna siglinga gamla Herjólfs. En Herjólfur ohf. tekur í fyrramálið við rekstri á siglingum milli lands og Vestmannaeyja sem Sæferðir/Eimskip hefur sinnt mörg undanfarin ár. Herjólfur ohf. er í eigu Vestmannabæjar.

Forstjóri Vegagerðarinnar skrifaði undir samkomulagið í Reykjavík ásamt fulltrúm Herjólfs ohf. en síðar í dag skrifar Vestamannaeyjabær undir  samkomulagið. Áður var búið að gera samkomulag um reksturinn almennt en þar sem nýr Herjólfur er ókominn og ákveðið að Herjólfur ohf. tæki við siglingum milli lands og Eyja þann 30. mars var gert samkomulag varðandi reksturinn á gamla Herjólfi.

Unnið er að lokauppgjöri vegna nýs Herjólfs en mikil breyting verður á þegar nýr Herjólfur hefur siglingar enda skipið vel smíðað svo sem sjá má á myndum sem fylgja með fréttinni.

Enn er siglt í Þorlákshöfn en veðurfar og sjólag hefur ekki leyft dýpkun í Landeyjahöfn í marga daga en dýpkun var annars langt komin. Þarf nokkra góða daga til að ljúka dýpkun nema því meira hafi borist af sandi í höfnina í veðrinu síðustu daga en dýpið verður mælt á laugardag.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.