Heimilisfólk á Hjúkrunar-og dvalarheimilinu Hraunbúðum sem mætti á íbúafund þar 28.05 s.l vill skora á stjórnvöld að bæta úr augnlæknaþjónustu í Vestmannaeyjum.
Augnlæknir hefur ekki komið til Vestmannaeyja lengi og vilja heimilismenn sitja við sama borð og þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu með sérfræðiþjónustu. Það kostar ómælt umstang og erfiðleika að þurfa að ferðast til þess eins að fá jafn sjálfsagða þjónustu og augnlæknaþjónusta er. Heimilisfólkið skorar á þá sem ábyrgð bera á heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni að bæta úr þessu þarfa máli sem allra fyrst.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.