Nýr hetjusöngur Vina og vandamanna

Eins og fram hefur komið halda Vinir og vandamenn þátttökutónleika í Höllinni þann 4. júlí og þar ætla þeir ekki aðeins að flytja eldri Eyjalög heldur verða einnig frumflutt tvö ný, sem bæði krefjast virkrar þátttöku áhorfenda. Það fyrra heitir, “Kappar þrír’ og er fjögurra erinda hetjukvæði eftir Leif Geir Hafsteinsson um þá Oddgeir Kristjánsson, Árna úr Eyjum og Ása í Bæ.

Eyjafréttir fengu góðfúslegt leyfi til að birta myndskeið af æfingu Vina og vandamanna þar sem þeir syngja fyrsta erindið, til að gefa verðandi tónleikagestum tækifæri til að læra hvenær á að klappa og hvenær á að syngja með.

Lagið er eftir hinn dáða norska þjóðlagatónlistarmann Lillebjörn Nilsen sem lést fyrr á árinu, en textinn er eins og fyrr segir eftir Leif Geir. Texti 1. erindis fylgir hér á eftir – áhorfendur eru beðnir um að klappa þegar við á, og syngja það sem er ritað með hástöfum:

Í Eyjum upp úr nítjánhundruð fæddust kappar þrír   (KLAPP)

sem sáu gráan hversdaginn sem litríkt ævintýr.       (KLAPP)

Þótt almenningur deildi ekki skilningi á því,              (KLAPP)

að tónlist skipti máli þegar væri fiskerí

 

En kapparnir héldu fast við sitt   SJÚDDERÍRA SJÚDDERÍREI (KLAPP)

Féllu’ ekki’ í þann fúla pytt          SJÚDDERÍRA SJÚDDERÍREI (KLAPP)

Að bakka um lítið hænufet

þeir gáfu í úrtölurnar fret

í tónlistarsköpun settu met!        SJÚDDERÍRA SJÚDDERÍREI (KLAPP)

 

TRALALALALALA

DREKKKUM ÞEIM OKKAR SKÁL!  (KLAPP)

Nýjustu fréttir

Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra
Að breyta samfélagi
Valentínusardagurinn er í dag
Mikilvægur heimaleikur hjá ÍBV
Vetrarbúningur í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.