Enn von á titli í lokaleik ÍBV í efstudeild
28. september, 2019

Gary Martin skoraði sitt tólfta mark í sumar þegar hann jafnaði úr vítaspyrnu á móti Breiðablik í síðustu umferð. Gary er næstmarkahæstur fyrir lokaumferðina í Pepsi Max deildinni en aðeins Hilmar Árni Halldórsson leikmaður Stjörnunnar hefur skorað meira, en Hilmar er kominn með þrettán mörk í sumar. ÍBV heimsækir einmitt Stjörnuna í lokaumferð deildarinnar þannig að ansi líklegt má teljast að úrslitin um gullskóinn eftirsótta ráðist á Samsung vellinum klukkan 14:00 í dag. Það nægir Gary að jafna Hilmar Árna að markafjölda því Hilmar hefur leikið 21 leik í deild en Gary aðeins 14. Takist Gary Martin að hreppa hnossið þá er það í fyrsta skipti sem leikmaður fær gullskóinn og fellur um deild.

Fjórir leikmenn hafa afrekað það að næla sér í bronsskó og vera í liði sem fellur um deild. Það gerði Kjartan Einarsson þegar hann féll með Keflavík árið 1989 og Bjarni Sveinbjörnsson skoraði 11 mörk fyrir Þór Akureyri árið 1994 sem dugði einnig fyrir bronsskó. Þróttarinn Björgólfur Takefusa náði í bronsskó árið 2003 með því að skora 10 mörk, en sama ár skoraði liðsfélagi hans Sören Hermannsen 14 mörk og uppskar silfurskó. Þrátt fyrir að eiga tvo af þrem markahæstu leikmönnum tímabilsins það ár féllu Þróttarar úr deild þeirra bestu. Aðeins einn annar hefur fallið með silfurskó en það var okkar maður Tómas Ingi Tómasson sem skoraði 14 mörk einnig fyrir Þrótt Reykjavík árið 1998.

Sá síðasti til að næla í gullskóinn fyrir ÍBV var Gunnar Heiðar Þorvaldsson árið 2003 og var það annar gullskór Gunnars á jafnmörgum árum. Tryggvi Guðmundsson var fyrsti leikmaður ÍBV til að hreppa gullskó árið 1997. Steingrímur Jóhannesson gerði það svo næstu tvö árin þar á eftir. Jonathan Glenn fékk silfurskó 2014 og 2015 en hann skipti í Breiðablik á miðju seinna tímabilinu.

Fari svo að Gary Martin næli í skóinn eftirsótta á laugardag verður það sjötti gullskór ÍBV sem verður þar með jafnt ÍA á lista yfir flesta gullskó félagsliða.

Eins og áður segir hefst leikur Stjörnuna og ÍBV á Samsung vellinum í Garðabæ klukkan 14:00 í dag.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.