Makríllinn vonbrigði en góður gangur í síldinni
Ekki náðist að veiða allan makrílvkótann í ár.

Enn eru óveidd um 30.000 tonn af 120.000 tonna heildarkvóta Íslendinga í makríl þetta árið. Ekki hefur veiðst makríll síðan í ágúst og nú hefur flotinn snúið sér að veiðum á norsk-íslensku síldinni og hafa veiðar gengið vel.

„Makrílinn endaði þannig að við veiddum tæp 10.000 tonn og áttum eftir um 5500 tonn. Veiðin var frekar endaslepp þetta árið,“ segir Sindri Viðarsson sem stýrir uppsjávarsviði Vinnslustöðvarinnar í gær. „Síldveiðar ganga vel og Gullberg er að fara í síðasta túrinn á norsk-íslensku síldinni í kvöld. Þá verðum við búin að veiða um 6.500 tonn. Síðan förum við á íslensku sumargotssíldina í lok október.“

„Ísfélagið endaði í rúmum 8800 tonnum af makríl sem eru mikil vonbrigði miðað við síðustu ár,“ segir Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins. „Það er hægt að geyma um 2200 tonn til næsta árs af þeim 8.000 tonnum sem eru óveidd af okkar kvóta. Veiðar í norsk-íslensku síldinni ganga vel þessa dagana og hafa okkar skip fiskað rúm 7000 tonn af 12.000 tonna kvóta. Við reiknum með að klára norsk-íslensku síldina í byrjun október. Tekur þá við kolmunnaveiði áður en við byrjum á íslensku síldinni.“

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.