HSU réttir upp hönd í að­draganda Alþingis­kosninga
Díana Óskarsdóttir skrifar
29. nóvember, 2024
Diana Hsu Utan Sams 1 1536x1055
Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Mynd/samsett

Það er við hæfi í aðdraganda Alþingiskosninga að kjósendur hnippi í stjórnmálafólk og frambjóðendur og forvitnist um áherslur þeirra á sviði heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Það er ekki að ástæðulausu sem ég rétti upp hönd fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og landsbyggðina á þessum tímapunkti og tæpi á nokkrum atriðum sem lúta að nýsköpun, þjónustu, öryggi, mannauði, fjármögnun og stefnumótun.

35 þúsund manna þjónustusvæði HSU þjónar nú um 35 þúsund manns á víðfeðmu 31 þúsund ferkílómetra svæði þar sem dreifðar byggðir og krefjandi veðuraðstæður auka þörfina fyrir sveigjanlegar lausnir. Til að mæta þessari þróun er nauðsynlegt að styrkja innviði, þar með talið húsnæði og tækjabúnað, ásamt því að þróa úrræði á borð við heimaspítala og fjarheilbrigðisþjónustu. Slíkar tæknilausnir stytta ferðalög sjúklinga, bæta nýtingu sérfræðiþekkingar og tryggja aðgengi að þjónustu óháð búsetu.

43% fjölgun í sjúkraflutningum HSU ber ábyrgð á sjúkraflutningum á öllu Suðurlandi, frá Þorlákshöfn í vestri að Höfn í Hornafirði í austri. Svæðið spannar um 31 þúsund ferkílómetra. Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir sjúkraflutningum á Suðurlandi aukist verulega. Þróunina má að mestu rekja til fjölgunar íbúa, sem hefur aukist um 17% á síðustu fimm árum, ásamt því að svæðið tekur á móti um 80% allra ferðamanna sem heimsækja Ísland ár hvert. Auk þess eru á svæðinu um 8.000 sumarhús, sem mörg hver eru nýtt allt árið um kring. Á meðfylgjandi mynd má sjá þróun fjölda sjúkraflutninga hjá HSU frá árinu 2020 til 2023, en þeim hefur fjölgað á tímabilinu um 43%. Til að bregðast við þessum vexti er nauðsynlegt að fjölga sjúkraflutningafólki hjá HSU og er ósk um þau útgjöld nú til meðferðar í heilbrigðisráðuneytinu.

HSU mynd 3

Yfirlit yfir fjölda útkalla sjúkraflutninga á Suðurlandi á tímabilinu 2020 til 2023. Tölurnar sýna annars vegar útköll í Árnessýslu og austur á Kirkjubæjarklaustur og hins vegar útköll á öllu starfssvæði HSU, þar með talið í Vestmannaeyjum og á Höfn.

Heimaspítalinn fær frábærar viðtökur Með nýsköpunarverkefnum eins og fjarheilbrigðisþjónustu og Heimaspítala HSU höfum við hjá HSU unnið að því að bæta aðgengi að þjónustu og draga úr álagi á sjúkrahús. Heimaspítalinn hefur fengið frábærar viðtökur og við höfum hug á því að þróa þessa þjónustu áfram, enda bætir hann þjónustuna við skjólstæðinga okkar ásamt því að stuðla að betri nýtingu fjármagns og starfsauðlinda. Markmið Heimaspítala HSU er að styðja við sjálfstæða búsetu eldra fólks, auka öryggi skjólstæðinga og lífsgæði þeirra, fækka innlögnum á sjúkrahús og stytta innlagnartíma. Þjónustan snýst einkum um annars vegar læknis- og hjúkrunarþjónustu í heimahúsi og hins vegar líknarþjónustu í heimahúsi.

Fjarvöktun með fjarheilbrigðistækni Fjarvöktun HSU með fjarheilbrigðistækni á það sameiginlegt með Heimaspítala HSU að hún er að mörgu leyti að styðja við sama skjólstæðingahópinn, fyrst og fremst eldra fólk. Fjarvöktunin styrkir eftirlit með skjólstæðingum með langvinna sjúkdóma og stuðlar að umbótum, nýbreytni og auknum gæðum í heilbrigðisþjónustu. HSU notast í þessu verkefni við norskan fjarvöktunarhugbúnað frá Dignio.

Margvíslegur ávinningur fjarvöktunar Vöktunin fer þannig fram að skjólstæðingar framkvæma mælingar í heimahúsi sem síðan er fylgst með á skjáborði á heilsugæslunni. Um er að ræða stöðugar og samfelldar mælingar sem eru áreiðanlegri en tilfallandi stakar mælingar sem gerðar eru á stöð. Ávinningurinn er margskonar og skjólstæðingar bæði njóta og finna til aukins öryggis, vitandi að fylgst er náið með þeim. Þjónustan er því bæði hagkvæmari og skilvirkari en aðrar lausnir og hefur reynst afskaplega farsæl hjá HSU. Þessi þjónustu kemur sér sérstaklega vel á okkar þjónustusvæði þar sem vegalengdir geta verið miklar.

Öflug heilbrigðisstofnun HSU gegnir lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi og er grundvöllur velferðar og öryggis íbúa og gesta á svæðinu. Með fjölbreytta þjónustu á sviði heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu sinnir HSU stærsta þjónustusvæði á landsbyggðinni. Stofnunin rekur 9 heilsugæslustöðvar á 10 starfsstöðvum, 2 sjúkrahús og 4 hjúkrunarheimili, auk þess sem hún sinnir bráðaþjónustu með 20 þúsund árlegum komum og sjúkraflutningum um allt umdæmið. Hjá HSU starfa núna um 850 starfsmenn í 550 stöðugildum og stofnuninni er árlega úthlutað um 11 til 12 milljörðum króna í fjárlögum til að sinna fjölbreyttum og umfangsmiklum verkefnum.

Tæknilausnir skipta sköpum Markmið HSU er að tryggja örugga, faglega og aðgengilega heilbrigðisþjónustu fyrir öll, óháð búsetu, efnahag eða uppruna, og stuðla þannig að betri heilsu og lífsgæði íbúa á Suðurlandi. Svæðið er víðfeðmt og með dreifðar byggðir þar sem vegalengdir eru oft miklar og veðuraðstæður geta verið krefjandi. Til að mæta þessum áskorunum er nauðsynlegt að styrkja heilsugæslustöðvar á lykilstöðum og þróa úrræði á borð við fjarheilbrigðisþjónustu. Tæknilausnir geta skipt sköpum, ekki aðeins til að stytta ferðalög sjúklinga heldur einnig til að nýta betur tíma og sérfræðiþekkingu heilbrigðisstarfsfólks.

Sveigjanleg viðbragðsþjónusta Ferðamannastraumurinn hefur jafnframt áhrif á heilbrigðisþjónustuna. Með mikinn fjölda ferðamanna þar sem náttúruperlur eins og Gullni hringurinn, Jökulsárlón og Skaftafell laða að sér gesti, er nauðsynlegt að bregðast við með sveigjanlegum lausnum. Þetta gæti falið í sér aukna neyðarþjónustu og viðbúnað til að takast á við bráðaástand, svo sem slys eða veikindi á afskekktum svæðum.

Mannauður Til að tryggja góða heilbrigðisþjónustu er nauðsynlegt að laða að hæft starfsfólk og bjóða því aðstöðu í takti við þarfir dagsins. Skortur á heilbrigðisstarfsfólki er áskorun um allt land og Suðurland er engin undantekning. HSU þarf að bjóða samkeppnishæf laun, aðstöðu til starfsþróunar og vinnuumhverfi sem styður við jafnvægi á milli vinnu og einkalífs.

Fjármögnun Ljóst er að heilbrigðiskerfið getur illa staðið undir öllum væntingum án nægilegrar fjármögnunar. HSU þarf fjármagn til að viðhalda og bæta innviði, endurnýja tæki og innleiða nýsköpunarverkefni. Þetta er sér í lagi mikilvægt á þjónustusvæði þar sem þarfir íbúa og ferðafólks eru síbreytilegar.

Framtíðarsýn Langtímasýn og stefnumótun er sömuleiðis lykilatriði. HSU þarf að horfa til framtíðar og aðlagast breyttum samfélagsþörfum, þar á meðal vaxandi hlutverki lýðheilsu. Áhersla á forvarnir, eins og stuðning við heilsusamlega lifnaðarhætti og geðheilbrigði, getur skilað sér í betri lífsgæðum íbúa og minna álagi á heilbrigðiskerfið til lengri tíma litið.

Aukið samstarf milli stofnana Þar sem umfangsmiklar sérhæfðar aðgerðir eru oft framkvæmdar á stærri sjúkrahúsum eins og Landspítala, er mikilvægt að byggja upp samstarf milli HSU og stærri heilbrigðisstofnana. Með slíku samstarfi er hægt að tryggja að íbúar Suðurlands fái bæði nauðsynlega grunnþjónustu á svæðinu og aðgengi að flóknari meðferðum eftir þörfum.

Boltinn er hjá stjórnvöldum Með skýrri stefnu í aðgengi, fjármögnun, mannauði og samráði getur HSU lagt grunn að framúrskarandi heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi. Á sama tíma eru miklar áskoranir fólgnar í íbúafjölgun á þjónustusvæðinu, vaxandi hlutfalli eldri borgara og vaxandi ákalli íbúa um bráðaviðbragð og öryggi óháð fjarlægðum. HSU er vissulega að mæta þessum ögrandi viðfangsefnum með nýsköpun á borð við Heimaspítalann og fjarvöktunarþjónustu. Mikilvægt er þó að fjármagn fylgi stóraukinni þjónustuþörf. Spyrjum þess vegna stjórnmálafólkið okkar: Hvernig ætla stjórnvöld að tryggja og styðja við vegferð HSU?

 

Díana Óskarsdóttir

Höfundur er forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

 

Pistillinn birtist á vef Heilbrigðisstofnunar Suðurlands – hsu.is.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.