Eyjatónleikar 2025 – Bjartsýn á góða aðsókn
Frábær stemning á einstökum tónleikum. Mynd Óskar Pátur.

Fjórtándu Eyjatónleikarnir verða haldnir í Eldborg í Hörpu  laugardagskvöldið 25. janúar þar sem söngvararnir Klara Elías, Sigga Beinteins, Magnús Kjartan, Bjartmar, Eló, Sæþór Vídó, Kristín Halldórs, Matti Matt og Guðný Elísabet Tórshamar koma fram. „Magni forfallaðist sökum veikinda og var Matti Matt svo elskulegur að taka hans hlutverk. Hljómsveitarstjóri er Þórir Úlfarsson sem hefur verið með okkur í 10 ár,“ segir Bjarni Ólafur Guðmundsson sem hefur staðið fyrir tónleikunum ásamt Guðrúnu Mary Ólafsdóttur, eiginkonu sinni frá upphafi.

„Undirbúningur hefur gengið vel en miðasala hefur verið mun hægari en oft áður en miðasala almennt hefur verið að færast nær tónleikadegi. Þannig að við erum enn bjartsýn enda um einstakan viðburð að ræða. Eyjatónleikar í Hörpu eru svo sannarlega frábær leið til að upplifa sanna Eyjastemningu.  Einnig er þetta algjörlega einstök leið til að hitta mikið af gömlu góðu Eyjafólki sem býr um allt land. Risastórt ættarmót Eyjamanna,“ segir Bjarni Ólafur.

Látum fylgja nokkrar myndir sem Óskar Pétur, sem myndað hefur tónleikana frá upphafi hefur tekið.

 

 

Nýjustu fréttir

Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.