Verkefnið kynnt bæjarbúum á næstu vikum
Listaverk Ólafs Elíassonar
DSC_3312
Páll Magnússon. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

„Ég hef heilmikinn skilning á því að fólk mótmæli  ef það telur að fyrirhuguð sé röskun á ásýnd Eldfells, eins og sagt er í yfirskrift þessarar undirskriftasöfnunar. Tala nú ekki um ef ég teldi að verið væri að framkvæma stórkostlegt og óafturkræft inngrip í náttúruna eins og sumir halda fram; þá myndi ég sjálfur skrifa undir mótmælin. Þessi staðhæfing er hins vegar röng. Það hefur alltaf legið fyrir sú staðfasta ætlun listamannsins og þeirra landslagsarkitekta sem vinna á hans vegum að þessi framkvæmd verði fyllilega afturkræf ef vilji stæði til þess í framtíðinni’’.

Þetta segir Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar, í tilefni af undirskriftasöfnun gegn röskun á ásýnd Eldfells.

„Það er líka auðvelt að hafa skilning á því að fólk sé tortryggið út í fyrirætlanir sem það hefur ekki séð og ekki fengið neina kynningu á. Það er þó ekki vegna þess að bæjaryfirvöld hafi verið að pukrast með þetta sem eitthvað leyndarmál, eins og einhverjir hafa verið að gefa til kynna, heldur vegna þess að listamaðurinn sjálfur hefur auðvitað stjórn á því hvenær hann telur verk sitt tilbúið til almennrar kynningar. Og það er fagnaðarefni að nú er sú stund runnin upp. Stefnt er að því að kynna bæjarbúum verkefnið á allra næstu vikum og ég er sannfærður um að eftir þá kynningu muni þeim fækka verulega sem nú hafa áhyggjur af því að ekki verði vel gengið um náttúruna,’’ segir Páll.

Nýjustu fréttir

Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu 
Fullfermi á báðum togurum
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.