64% nýting í fluginu
Flug Ernir Farthegar Jan 2024 Tms Lagf
Flugsamgöngur milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur hefjast svo á ný 1. desember. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Í byrjun desember hófst áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Vegagerðin, fyrir hönd ríkisins samdi við Mýflug um flugið, en samkvæmt samningnum greiðir Vegagerðin Mýflugi 691.062 kr. fyrir hvert flug (RVK-VES-RVK). Um er að ræða flug á tímabilinu 1. desember til 28. febrúar og einungis greitt fyrir það tímabil og greiðir Vegagerðin því 35.935.224,- á ári til flugfélagsins.

Í svörum til Eyjafrétta frá Vegagerðinni um hvort flugfélagið fái greiddan styrk fyrir ferð sem ekki er farin sökum ófærðar, segir að samkvæmt samningi rekstraraðila við Vegagerðina fær rekstraraðili greitt 50% af einingarverði þeirrar ferðar sem fellur niður ef ferð er ekki farin vegna ófærðar.

Þegar ekki er hægt að fljúga sökum ófærðar – hvers vegna er ekki farið síðar um daginn eða daginn eftir, sé orðið fært? 
Ef aflýsa þarf flugferð skv. áætlun vegna veðurs, eru ákvæði í samningnum  um að rekstraraðili fari ferðina við fyrsta mögulega tækifæri, svo framarlega sem fyrirsjáanlegt er að ferðinni verði lokið áður en næsta ferð skv. áætlun á að hefjast.

Ekki gerðar kröfur um markaðssetningu

F​lugáætlunin hefur verið lítið markaðssett​ er því er spurt hvort engar kröfur ​séu um að markaðssetja slíka þjónustu sem er ríkisstyrkt​. Í​ svari Vegagerðarinnar segir að í samningnum ​séu ekki gerðar kröfur um markaðssetningu á ríkisstyrktu flugi. Rekstraraðila er þó heimilt að markaðssetja flugið.

Áður hafði komið fram í svari Vegagerðarinnar að Mýflug sé að nota B200 Kingair flugvélar í verkefnið sem stendur en það er flugrekandans að ákveða hvaða vélartegund hann notar í verkefnið svo fremi sem þær uppfylla kröfur útboðsins. B200 Kingair flugvélar taka 7-9 farþega eftir útfærslu vélarinnar hverju sinni.

Síðasta fyrirspurnin til Vegagerðarinnar var um nýtinguna hingað til. Segir í svarinu að ​núverandi samningur ​hafi tekið gildi 01.12.24 og hefur nýtingin verið að meðaltali um 64%.

Nýjustu fréttir

Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.