„Sérstök vertíð”
DSC 2373
Á sjónum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í heimahöfn á miðvikudaginn. Afli beggja skipa var blandaður; ufsi, ýsa, þorskur og koli. Í frétt á vefsíðu Síldarvinnslunnar segir að skipstjórar skipanna hafi báðir verið ágætlega sáttir við aflabrögðin. Birgir Þór Sverrisson á Vestmannaey sagði að það væri aðeins farinn að sjást vertíðarfiskur við Eyjar.

„Við byrjuðum í sólarhring á Ingólfshöfða. Þar var gott fiskirí og við fengum ein 50 tonn en síðan var klippt á það. Þá færðum við okkur á Broadway, tókum þar þrjár sköfur og fylltum. Fiskiríið er býsna misjafnt þessa dagana. Það koma glennur en svo dettur það niður. Það verður að segjast að þetta er sérstök vertíð, veiðin er ágæt en það er ekki samfelld kraftveiði,” sagði Birgir Þór.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, var ágætlega sáttur við túrinn. „Við létum úr höfn í Þorlákshöfn og byrjuðum að taka eitt hol á Selvogsbankanum. Þar var rólegt þannig að við keyrðum austur á Ingólfshöfða. Við vorum þar í tvær birtur, sú fyrri var góð en hin síðari gaf ekkert. Þá var haldið á Brekableyðuna og þar var góð veiði. Aflinn var vel blandaður og við fylltum þar í þremur holum. Þetta var stuttur túr, einn og hálfur sólarhringur fór í keyrslu og við vorum svipaðan tíma að veiðum,” sagði Jón. Vestmannaey hélt á ný til veiða í gær og Bergur í nótt sem leið.

Nýjustu fréttir

Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.