Einstakt fágætissafn opnað
Fágætissalur
Mikill áhugi var á opnun safnsins. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson.

Fágætissalur í Ágústarstofu var opnaður í Safnahúsinu í gær að viðstöddu fjölmenni. Hófst dagskráin í Ráðhúsinu þar sem  flutt voru stutt ávörp.

Um er að ræða eitt merkilegasta fágætisbókasafn landsins opnað almenningi en uppistaðan í því er um 1500 bækur sem Ágúst Einarsson, fyrrverandi prófessor og rektor á Bifröst hefur gefið Bókasafni Vestmannaeyja. Þar verður meðal annars að finna allar útgáfur Biblíunnar frá Guðbrandsbiblíu 1584, Þorláksbiblíu 1644og Steinsbiblíu 1728 að telja.  Elsta bókin í safninu er Vögguprent, frá 1498.  Þá verða einnig í fágætissalnum 37 málverk eftir Jóhannes Kjarval en Vestmannaeyjabær mun eiga eitt stærsta safn Kjarvalsverka sem loksins verða gerð aðgengileg á varanlegri sýningu.  Verk eftir Júlíönu Sveinsdóttur prýða veggi sérstaks átthagarýmis með rösklega 2.000 bókum og blöðum, auk Íslandskorta frá um 1570.

Fyrsti hluti dagskrárinnar, sem fram fór í Ráðhúsinu, má sjá hér að neðan. Upptakan er af myndbandssíðu Sagnheima. Upptöku og myndvinnslu annaðist Halldór B. Halldórsson. Fleiri myndbönd frá opnuninni verða sýnd á næstu dögum auk þess sem dagskránni verða gerð góð skil í næsta blaði Eyjafrétta.

Play Video

Nýjustu fréttir

Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.