Ekki orðið sjóslys við Vestmannaeyjar í 23 ár
3. júní, 2025
Athöfnin við minnisvarðann við Landakirkju.

Geir Jón Þórisson – Minningarorð við minnisvarða drukknaðra og hrapaða á Sjómannadegi:

„Ég vil óska öllum sjómönnum, fjölskyldum þeirra og öllum öðrum er mál mitt heyra, gleðilegan sjómannadag. Hér í Eyjum höfum við vanist því að gera þennan dag hátíðlegan og skemmtilegan og það skulum við ávallt hafa í heiðri,“ sagði Geir Jón Þórisson sem stýrði minnigarathöfn við minnisvarða um drukknaða og hrapaða að lokinni messu í Landakirkju á Sjómannadaginn. Lúðrasveitin lék nokkur lög, fánar stéttarfélaga sjómanna voru bornir að minnisvarðinn og hann var lagður blómakrans.

„Minning þeirra á alltaf að lifa enda færðu þeir miklar fórnir fyrir sitt byggðarlag. Hér á árum áður máttu margar fjölskyldur upplifa mikla sorg þegar pabbinn, afinn, sonurinn, bróðurinn eða einhver annar nátengdur komu ekki heim eftir sjóróðurinn eða úr úteyjum. Við minnumst þeirra allra á þessari stundu. Guð blessi minningu þeirra og alla afkomendur,“ sagði Geir og rakti þær miklu breytingar sem orðið hafa í björgunarbúnaði og að með stærri og öflugri skipum hefur slysum á sjó fækkað.

 

Fjöldi fólks var við athöfnina.

Björgunarafrek

„Það ásamt öflugri þjálfun sjómanna hefur orðið til þess að sjóslys eru sem betur fer mjög fátíð, fyrir það skulum við vera þakklát. Við megum vera afskaplega þakklát fyrir að eiga öfluga sveit björgunaraðila í Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Hafa félagsmenn lagt á sig mikið erfiði við að endurnýja björgunarskip félagsins og annan búnað sem hefur svo sannarlega sannað gildi sitt. Síðast liðinn vetur unnu Björgunarfélagsmenn mikið afrek við mjög erfiðar aðstæður við björgun sjófarenda á skútu sem var illa farin og ósjófær skammt frá Eyjum. Nýja björghunarskip Björgunarfélagsins, Þór sannaði svo um munar hvað okkur er mikilvægt að búa yfir þessu góða og öfluga björgunarskipi.“

Geir Jón sagði að fyrir um 23 árum, eða 23. febrúar 2002 var síðasta mannskaða sjólys við Vestmannaeyjar þegar Bjarmi VE 66 sökk skyndilega vestur af  Þrídröngum með fjórum mönnum. Tveir björguðust sem má þakka Tilkynningarskyldu Landhelgisgæslunnar og áhöfnum varðskipsins Týs og þyrlu Gæslunnar  sem náði að bjarga tveimur mönnum. „Þetta sýnir okkur enn og aftur hvað vöktun skipa skiptir miklu máli sem öfllugt öryggisnet fyrir sjómenn okkar. Þá vil ég minnast á Slysavarnaskóla sjómanna sem heldur upp á 40 ára afmælið sitt í ár. Tilkoma þessa skóla hefur skipt sköpum og sannað gildi sitt fyrir okkar kæru sjómenn,“ sagði Geir og minntist á fólk frá hinum ýmsum þjóðlöndum sem hér starfar til sjós og lands.

 

Lúðrasveitin skipar alltaf veglegan sess í dagskrá sjómannadagsins.

Þökkum þá vernd sem hvílir yfir okkur

„Margt af þessu fólki hefur fest hér rætur og vill vera hér. Við erum heppin að hafa þetta góða fólk á meðal okkar þó svo að okkur kannski greini á um eitthvað svo sem trúarbrögð og ýmsar siðvenjur en höfum það ávallt í huga að góður Guð elskar okkur öll  hver svo sem við erum og vill að við sínum hvort öðru kærleika, vinskap og skilning.

Verkefnin á akri Guðs er uppskera, eða björgun verðmæta eins og sagt var hér í Eyjum þegar mikill afli barst á land og allir þurstu til starfa í gleði og eftirvæntingu. Verðmætin mestu eru þó fyrst og fremst lífið, vonin, umhyggjan, fyrirgefningin, miskunnsemin, kærleikurinn í heimi okkar.

Við skulum þakka fyrir þá vernd sem hvílir yfir okkur við oft mjög krefjandi og erfiðar aðstæður en við getum verið þakklát fyrir að yfir okkur vakir vernd Guðs, sem við höfum svo oft upplifað,“ sagði Geir Jón og óskaði sjómsjómönnum og öðrum sem á hlýddu farsældar og hamingju og Eyjasamfélaginu hagsældar.

„Mig langar að ljúka orðum mínum með kveðju sr. Jóhanns Hlíðar á Sjómannadeginum 1968. – Kæru sjómenn! Haldið fast í hina lifandi von, í starfi, í lífi og í dauða. Í lifandi von bið ég ykkur blessunar á þessum degi, sjómannadeginum og alla daga, hvert sem leiðir ykkar liggja og bið ykkur að varðveita þessa bæn í hjarta, hvernig sem blæs.

Blessuð von í brjósti mínu

bú þú meðan hér ég dvel,

lát mig sjá í ljósi þínu

ljómann dýrðar bak við hel.

Guð gefi ykkur gleðiríkan sjómannadag 2025 í Jesú nafni.“

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.