Viljum fela Guði bæði skip og áhöfn
Guðbjörg Matthíasdóttir og séra Viðar í brú Heimaeyjar þar sem athöfnin fór fram. Mynd Óskar Pétur.

„Það er alltaf mikil gleði þegar skip eru blessuð. Það er samt vert að geta þess að það er ekki sjálfsagt en er gert því við viljum fela Guði bæði skip og áhöfn. Setja á hann allt okkar traust,“ sagði séra Viðar Stefánsson þegar hann blessaði skip og áhöfn Heimaeyjar VE 1 í gær.

„Það er hverjum sjómanni nauðsyn að hafa Jesús um borð í sínu skipi og þá mun Guð fylgja þeim hvert sem þeir rata,“ sagði Viðar eftir að hafa vitnað í Biblíuna þar sem sagt er frá því þegar Jesús lægði bæði sjó og storm.

„Það er venja í skipsblessun að farið sé með Sjóferðabæn séra Odds V. Gíslasonar prests í Grindavík sem lét sig slysavarnir sjómanna sig miklu varða.  Það er venja að presturinn fari með bænina en ég ætla að biðja skipstjórann um að gera það fyrir mig,“ sagði Viðar og kallaði til Ólaf Einarsson skipstjóra sem las bænina af skildi sem Landakirkja gefur hverju nýju skipi við komuna til Vestmannaeyja.

Ólafur brást vel við og las bænina sem er gott veganesti þegar á sjó er haldið.

 

Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins og Ólafur. Mynd Óskar Pétur.

 

Sjóferðabæn sr. Odds V. Gíslasonar

Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda.

Almáttugi Guð, ég þakka þér að þú hefur gefið mér líf

og heilsu svo ég geti unnið min störf í sveita míns andlits.

Drottinn minn og guð minn. Þegar ég nú ræ til fiskveiða

og finn vanmátt minn og veikleika bátsins gegn huldum

kröftum lofts og lagar, þá lyfti ég upp til þín augum trúar og

vonar og bið þig í Jesú nafni að leiða oss á djúpið, blessa oss

að vorum veiðum og vernda oss, að vér aftur farsællega heim

til vor náum með þá björg sem þér þóknast að gefa oss.

Blessa þú ástvini vora, og leyf oss að fagna aftur

samfundum svo vér fyrir heilags anda náð

samhuga flytjum þér lof og þakkargjöro.

Ó, Drottinn. Gef oss öllum góðar stundir,

skipi og mönnum í Jesú nafni.

Amen

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.