Þórunn Sveinsdóttir VE sett á söluskrá​
Thorunn Sv TMS 20210811 163809
Þórunn Sveinsdóttir VE á leið á miðin. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Í gær var áhöfn Þórunnar Sveinsdóttur tilkynnt um að til standi að setja skipið á söluskrá. Þetta herma heimildir Eyjafrétta. Samkvæmt sömu heimildum segir að ekki hafi komið til uppsagna.

Þórunn Sveinsdóttir VE-401 er togari sem er í eigu Óss ehf., dótturfélags Vinnslustöðvarinnar. Vinnslustöðin hf. keypti allt hlutafé í félaginu árið 2023 ásamt hlutafé í Leo Seafood, fiskvinnslu sem var að meirihluta í eigu sömu aðila.

Fram kom nýverið að Vinnslustöðin hafi verið rekin með 500 milljón króna tapi í fyrra og námu skuldir og skuldbindingar félagsins um 44 milljörðum króna. Leiða má að því líkum að frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi um hækkun veiðigjalda vegi þungt í þessari ákvörðun forsvarsmanna fyrirtækisins. Nánar verður fjallað um málið síðar í dag hér á Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

ÍBV í lykilstöðu eftir sigur gegn Haukum
Dagskráin á sumardaginn fyrsta
Tilboð upp á 480 milljónir í Ægisgötu 2
Barnamenningardagar settir í dag
Efri árin skipta máli
Alvarleg staða samgöngumála: Kallað eftir tafarlausum aðgerðum
Eldsneytisvandi í Eyjum
Segir þingmenn tala öðruvísi í Eyjum en í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.