Ísfisktogarinn Vestmannaey VE hélt til veiða frá Akureyri á þriðjudag í síðustu viku að aflokinni skveringu í slippnum þar. Skipið var í slipp í einar fimm vikur og lítur býsna vel út að því loknu. Rætt er við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á vefsíðu Síldarvinnslunnar og er hann fyrst spurður hvernig veiðar hafi gengið eftir slippinn.
„Við fórum suður fyrir land frá Akureyri og hófum veiðar út af Garðskaganum. Þar fékkst ýsa. Þaðan var haldið út á Fjöllin í karfaleit. Þar gengu veiðarnar vel og við lönduðum fullfermi í Grindavík á laugardaginn. Að lokinni löndun í Grindavík var aftur reynt við ýsu út af Garðskaganum en þá gripum við í tómt. Þar var afar lítið að hafa. Því var haldið þaðan á Víkina þar sem var heldur rólegt og þaðan á Höfðann þar sem fékkst góð blanda. Síðan var reynt á Mýragrunni þar sem einnig fékkst blanda og loks var farið á Víkina aftur og skipið fyllt. Við lönduðum síðan fullfermi í Eyjum í fyrradag og aflinn var mest ýsa og þorskur og dálítill ufsi með. Að lokinni löndun var um fátt annað hugsað en komandi Þjóðhátíð en ekki verður haldið á ný til veiða fyrr en í hádeginu á mánudag,” sagði Birgir Þór.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst