Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, mun flytja ávarp við setningu Menntakviku kl. 14:30 í dag í Sögu, nýju húsi Menntavísindasviðs HÍ við Hagatorg. Þar mun hann m.a. kynna og opna nýjan vef MEMM sem inniheldur safn af gagnlegum tækjum og tólum til stuðnings við skólasamfélagið fyrir móttöku barna af erlendum uppruna.
Í haust hófst jafnframt nýtt lotunám fyrir innflytjendur strax við komu þeirra til landsins til að undirbúa þá fyrir skólagöngu hérlendis með megináherslu á íslensku og fræðslu um íslenskt samfélag. Þá hafa nýjar íslenskubrautir verið opnaðar í framhaldsskólum landsins. Samhliða eru tengiliðir farsældar komnir í alla skóla sem tengja nemendur og foreldra við þá þjónustu sem á við hverju sinni þegar áskoranir gera vart við sig með snemmtækt inngrip að leiðarljósi. Saman bæta þessi úrræði móttöku barna af erlendum uppruna til muna. Nánari upplýsingar verða birtar á vef mennta- og barnamálaráðuneytisins síðdegis.
Mennta- og barnamálaráðuneytið vekur einnig athygli á netfundinum í kvöld, Skólakerfið á Íslandi: Hvernig geta foreldrar stutt börn sín í námi? Fundurinn er haldinn kl. 18:00-19:30 á arabísku, pólsku, spænsku og úkraínsku fyrir erlenda foreldra sem eru nýfluttir til landsins til að börn þeirra fái sem bestu menntun.
Fréttatilkynning frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst