Pétur Steingrímsson og Gunnar Heiðar Gunnarsson afhentu laugardaginn 17. október ágóðann af hinu árlega kótilettukvöldi í Höllinni. Alls söfnuðust 1.616.000 krónur sem skiptust jafnt á milli Krabbavarnar Vestmannaeyja og Hollvinasamtaka Hraunbúða. Fékk hvort félag 808.000 krónur til styrktar starfsemi sinni.
Fyrir hönd Hollvinasamtaka Hraunbúða tóku Bjarni Ólafur Guðmundsson og Halldóra Kristín Ágústsdóttir við styrknum en Olga Bjarnadóttir og Þóranna M. Sigurbergsdóttir fyrir hönd Krabbavarnar.
Kótilettukvöldið fór fram fimmtudaginn 15. október og tókst með miklum ágætum. Alls mættu 350 gestir, sem er nýtt aðsóknarmet, en í fyrra voru þeir 322. Gestir nutu góðs matar, fjölbreyttrar skemmtunar og samveru í anda þessa vinsæla góðgerðarviðburðar.
Pétur og Gunnar hafa um árabil staðið fyrir kótilettukvöldinu með dyggri aðstoð sjálfboðaliða og stuðningi fjölmargra aðila. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og er kvöldið orðið fastur liður í félagslífi Eyjamanna.
Fulltrúar beggja félaga færa Pétri og Gunnari innilegar þakkir fyrir framtakið og veglegan styrk sem mun nýtast vel í starfi þeirra.
Kótilettukvöldið er enn eitt dæmið um þann samtakamátt sem einkennir samfélagið í Vestmannaeyjum, þar sem góð skemmtun og samvera skila sér í rausnarlegum stuðningi við góð málefni.
