Sex umsagnir bárust um deiliskipulag við Rauðagerði
raudagerdi_deiliskipulag
Skýringarmynd: ásýnd svæðisins sé frá lofti miðað við nýja byggingarreiti.

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja fjallaði nýverið um tillögu að deiliskipulagi við Rauðagerði. Tillagan var kynnt á vinnslustigi frá 26. ágúst til 17. september 2025 í samræmi við skipulagslög. Alls bárust sex umsagnir vegna málsins sem teknar hafa verið saman og metnar í samantekt sem lögð var fyrir ráðið.

Nýtt íbúðarhúsnæði á lóð Rauðagerðis

Á lóðinni við Boðaslóð 8–10, þar sem áður starfaði leikskólinn Rauðagerði, hefur verið ákveðið að rífa núverandi húsnæði og byggja þar nýtt íbúðarhúsnæði. Tillagan gerir ráð fyrir fjórum minni fjölbýlishúsum með samtals 16–18 íbúðum og bílakjallara fyrir allt að 16 bíla. Einnig verður breytt legu gangstéttar við Boðaslóð til að koma fyrir skábílastæðum, sem eykur fjölda bílastæða við götuna.

Auk þess felur tillagan í sér viðbyggingu við Hásteinsveg 43 og almennar reglur um girðingar, garðskúra og skjólveggi innan skipulagssvæðisins. Svæðið afmarkast af Hásteinsvegi, Boðaslóð, Bessastíg og Heiðarvegi.

Kynning og samráð við íbúa

Tillagan var auglýst í bæjarmiðlum og öllum fasteignareigendum á svæðinu og í nágrenni þess sent bréf til að vekja athygli á málinu.
Einnig var haldið opið hús hjá skipulagsfulltrúa dagana 2.–4. september þar sem íbúar gátu kynnt sér málið og komið á framfæri ábendingum eða spurningum.

Alls bárust sex umsagnir á kynningartímanum, frá eftirtöldum aðilum: Skipulagsstofnun, Vegagerðinni – Suðursvæði, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Slökkviliði Vestmannaeyja, Þórunni Jóhönnu Viktorsdóttur og Þuríði Ósk Georgsdóttur. Fram kemur í samantektinni að Skipulagsstofnun gefi ekki almenna umsögn um tillöguna á þessu stigi málsins.

Athugasemdir og viðbrögð

Slökkvilið Vestmannaeyja lagði áherslu á að tryggt yrði að ný bílastæði þrengi ekki að götum þannig að aðkoma slökkvibíla versni.
Vestmannaeyjabær svarar því þannig að samkvæmt deiliskipulaginu sé tekið lítillega af lóð til að mæta plássþörf fyrir stæðin og að akstursrými eigi því að haldast óbreytt.

Þórunn Jóhanna Viktorsdóttir og Þuríður Ósk Georgsdóttir, sem búa við Heiðarveg 43, lýstu áhyggjum af áhrifum fyrirhugaðra bygginga á hverfisbrag, birtu, útsýni og hávaða. Vestmannaeyjabær svarar því til að byggingaráformin séu hófleg, falli að yfirbragði hverfisins og stuðli að fjölbreyttu íbúðaframboði. Skoðaður verður möguleiki á að færa byggingarreit húss merkt nr. 1 til austurs til að draga úr skuggamyndun.

Framhald málsins

Ráðið fól skipulagsfulltrúa framgang málsins og að ræða við lóðarhafa í samræmi við greinargerð með viðbrögðum ráðsins vegna athugasemda.

Nýjustu fréttir

Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í ferbrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.