Húsfyllir á tónleikum bræðranna

Húsfyllir á tónleikum bræðranna Það er óhætt að segja að það hafi verið fjör í Höllinni í gærkvöldi þegar fram fóru tónleikar með bræðrunum Ingólfi og Guðmundi Þórarinssonum. Með þeim var heil hljómsveit af fagmönnum, en ber þar helst að nefna Bjössa sax, sem margir þekkja.

Ingó og Gummi tóku öll sín bestu lög við góðar undirtektir. Slagarar eins og Suðurlandsins eina von, Valli Reynis, Bahama og Bálskotinn í þér féllu vel í kramið á meðal áhorfenda, sem voru á öllum aldri. Frumflutt var lagið “Bikaróði Eyjamaðurinn” sem fjallar um Grétar Þór Eyþórsson. Ingó sagði frá því að margir hafi haldið að hann hafi sjálfur fengið þá hugdettu að gera lag um Grétar, en staðreyndin væri sú að Grétar væri búinn að vera að suða um lag síðan árið 2014. Það hafi síðan verið á golfvellinum í Eyjum síðasta sumar að lagið og laglínan hafi komið til hans. Grétar tók síðan lagið með bandinu í lokin við mikinn fögnuð viðstaddra.

Nýjustu fréttir

The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.