Miðflokkurinn hefur ákveðið að bjóða fram lista í Vestmannaeyjum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ákvörðunin var tekin í framhaldi af fjölsóttum stjórnmálafundi flokksins í Eyjum fyrr á árinu og samkvæmt tilkynningu einnig vegna ákalls frá bæjarbúum. Kynning á frambjóðendum mun hefjast á næstu dögum, en jafnframt er áhugasamt fólk hvatt til að hafa samband við Miðflokksdeild Vestmannaeyja.
Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan.
Ákveðið hefur verið að bjóða fram lista Miðflokksins í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Var þetta ákveðið í framhaldi af fjölsóttum stjórnmálafundi Miðflokksins í Eyjum í ársbyrjun og eftir ákall bæjarbúa í þá veru.
Frambjóðendur verða kynntir hver á fætur öðrum á næstu dögum á Facebooksíðu Miðflokksins í Vestmannaeyjum.
Áhugasamir frambjóðendur eru hvattir til að hafa samband við Miðflokksdeild Vestmannaeyja, formaður hennar er Guðni Hjörleifsson.
Facebook síðu Miðflokksins í Vestmannaeyjum má finna hér.
Bestu kveðjur frá Miðflokknum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.