„60 milljónir eru þeim ofviða“
Karl Gauti gagnrýnir ríkisstjórnina vegna samgangna við Vestmannaeyjar
Karl Gauti Hjaltason.

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í ræðu undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag og sagði samgöngumál Vestmannaeyja enn vera í óviðunandi stöðu.

Í ræðunni benti hann á að farþegaferjan Herjólfur sigli nú til Þorlákshafnar þar sem dýpið í Landeyjahöfn sé ekki nægjanlegt. Vestmannaeyingar þurfi að búa við það nánast á hverjum vetri að höfnin þjóni ekki tilgangi sínum, allt frá því hún var tekin í notkun árið 2010. Hann sagði athyglisvert að ekki væri unnt að sigla í höfnina þrátt fyrir að ölduhæð við Landeyjasand væri stundum einungis um tveir metrar, og minnti á að upphaflega hefði verið gert ráð fyrir að Herjólfur gæti lagst að bryggju í allt að 3,5 metra ölduhæð.

Karl Gauti vakti einnig athygli á takmörkuðu flugi til Vestmannaeyja yfir hörðustu vetrarmánuðina og sagði að samkvæmt samkomulagi við flugrekanda ljúki því 1. mars næstkomandi.

Þá rifjaði hann upp að allir flokkar hefðu fyrir síðustu kosningar lofað á fjölmennum íbúafundi í Vestmannaeyjum að tryggja fjármagn til þrepaskiptrar rannsóknar á fýsileika jarðganga til Eyja næðu þeir stjórnarmyndun. Nú sitji þeir flokkar í ríkisstjórn en kostnaður við fyrstu tilraunaboranir sé áætlaður um 60 milljónir króna sem ekki hafi fengist fjármagnaðar.

Sagði hann þetta fela í sér svik við Vestmannaeyinga og benti á að á sama tíma skiluðu nýir skattar, sem að hans mati legðust þungt á landsbyggðina og ekki síst Eyjarnar, hundruðum milljóna króna í ríkissjóð. Vestmannaeyingar hefðu sjálfir stofnað félag til að hrinda rannsóknum af stað á meðan ríkisvaldið „yppti öxlum“ og ríkisstjórnarflokkarnir færu í felur frá loforðum sínum.

Að lokum sagði Karl Gauti það fagnaðarefni að ákveðið hefði verið að Miðflokkurinn byði fram í Vestmannaeyjum í komandi kosningum og bætti við að flokkurinn myndi skipta máli bæði á þingi og í sveitarstjórnum.

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.