Krabbavörn bauð til opins húss í Arnardrangi í dag í tilefni af Mottumars. Þar komu félagar og gestir saman, nutu samveru og fengu sér kaffi og meðlæti.
Að lokinni samveru var haldið að minnisvarða Oddgeirs Kristjánssonar þar sem kveikt var á 37 kertum til minningar og stuðnings. Kertin loguðu í kvöldkyrrðinni og settu hátíðlegan svip á stundina.
Að athöfn lokinni kom karladeild Krabbavarnar saman í Arnardrangi og hélt þar sinn fund. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta tók meðfylgjandi myndefni í gær.