Gæslan sótti tvo sjúklinga til Eyja
TF-EIR í Vestmannaeyjum mynd: Landhelgisgæslan

 

Áhöfnin á TF-EIR sótti tvo sjúklinga til Vestmannaeyja á þriðja tímanum í dag. Vegna veðurs reyndist ekki unnt að senda sjúkraflugvél til Eyja. TF-EIR lenti á flugvellinum í Vestmannaeyjum þar sem tveir sjúklingar fóru um borð. Á bakaleiðinni var skyggni orðið slæmt og þegar komið var Lækjarbotnum í nágrenni Hólmsár var ákveðið að lenda þyrlunni á hól þar sem áhöfnin beið af sér verstu snjóélin. Eftir tíu mínútna bið var svo haldið á Reykjavíkurflugvöll og sjúklingarnir voru fluttir þaðan í sjúkrabíl á Landspítalann.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.