Saman gerum við góðan bæ enn betri
Erlingur Guðbjörnsson

Aðsend grein

Erlingur Guðbjörnsson

Við í Eyjalistanum trúum því að sterkar Vestmannaeyjar byggist á öflugri þjónustu, ábyrgum rekstri og skýrri framtíðarsýn. Við viljum byggja upp samfélag þar sem fjölskyldur, börn og eldri borgarar njóta góðs stuðnings og þar sem tækifæri eru fyrir alla.

Menntun og uppeldi

Við viljum tryggja að aðstaða og þjónusta við börn og fjölskyldur sé til fyrirmyndar. Þess vegna ætlum við að tryggja byggingu nýs leikskóla við Löngulág á kjörtímabilinu með möguleika á stækkun.

Við viljum halda áfram að styðja við foreldra með heimgreiðslum og skoða hækkun á greiðsluþaki ef þörf er á. Við leggjum áherslu á að styrkja skólana með ráðningu fjöltyngisstjóra, tryggja áfram góða sérkennslu og öfluga íslenskukennslu fyrir alla nemendur.

Við ætlum að halda áfram að styðja við Kveikjum neistann, sem hefur komið vel út og vakið landsathygli. Við viljum tryggja gott fæði, vel búna skóla og áframhaldandi viðhald á skólahúsnæði.

Fjölskyldur og velferð í öndvegi

Við viljum að allir hafi aðgengi að tómstundum og öflugu félagslífi. Þess vegna ætlum við að hækka og stigskipta frístundastyrk upp í 75.000 krónur og fjölga aðildarfélögum.

Við leggjum áherslu á öfluga velferðarþjónustu og tryggjum áfram aðgengi að sálfræðingi, iðjuþjálfa og þroskaþjálfa. Við viljum bæta aðgengi, skapa fleiri atvinnutækifæri fyrir fatlað fólk og stofna endurhæfingarmiðstöð fyrir þá sem standa utan vinnumarkaðar.

Menning og samfélag

Menningin er hjartað í samfélaginu okkar og við viljum efla hana. Við ætlum að kanna möguleikann á stækkun Einarsstofu í Safnahúsi og halda áfram verkefninu „Viltu hafa áhrif”.

Við styðjum við fjölbreytta menningar og listsköpun og viljum nýta Stakkagerðistún betur sem lifandi samkomustað fyrir alla.

Skipulag, umhverfi og fallegri bæjarbragur

Við viljum vinna markvisst og með meira gagnsæi þegar kemur að framkvæmdum bæjarins. Við ætlum að bæta umferðaröryggi, halda áfram uppbyggingu leikvalla og tryggja að lóðir séu tilbúnar áður en þeim er úthlutað.

Við viljum halda áfram að bæta sorpmál, fjölga grenndarstöðvum og gera bæinn enn snyrtilegri og vistvænni.

Atvinna og framtíðartækifæri

Við viljum styðja áfram við öflugt atvinnulíf, halda áfram vinnu við uppbyggingu stórskipahafnar og styðja vel við ferðaþjónustu.

Við viljum skapa betri aðstæður fyrir nýsköpun og styðja við frumkvöðla sem vilja byggja upp framtíðina í Eyjum.

Hagsmunir Eyjamanna

Við munum standa fast á því að hagsmunir Vestmannaeyja fái það vægi sem þeir eiga skilið. Við þrýstum á bættar samgöngur, fleiri flugferðir og betri þjónustu.

Við ætlum að berjast fyrir öflugri heilbrigðisþjónustu, nýju hjúkrunarheimili og auknum úrræðum hér í Eyjum.

Með ábyrgð, metnað og skýra sýn

Við trúum á ábyrga fjármálastjórn, raunhæfar lausnir og skýra forystu. Við hlustum á íbúa, vinnum saman og klárum verkefnin.

Við hjá Eyjalistanum elskum Vestmannaeyjar og ætlum svo sannarlega að halda áfram að gera góðan bæ enn betri.

 

Erlingur Guðbjörnsson

Skipar 3 sæti Eyjalistans.

Nýjustu fréttir

Saman gerum við góðan bæ enn betri
Hundruð hafa þegar kosið utan kjörfundar í Eyjum
Líflegur lokasprettur í baráttunni – myndir
Þungavigtarfólk byggði upp Vestmannaeyjar
Áttatíu eldri borgarar í sælunni á Tenerife
Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum
Teistan siglir til Landeyjahafnar
Fyrsta framhaldsprófið í trommuleik við Tónlistarskóla Vestmannaeyja
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.