Lægsta tilboð í svið á Vigtartorgi 10,6 milljónum yfir áætlun
Nýtt svið er fyrirhugað á Vigtartorgi. Framkvæmda- og hafnarráð hefur mælt með því að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Þrjú tilboð bárust í smíði nýs sviðs á Vigtartorgi þegar opnað var fyrir þau þann 18. júní síðastliðinn. Lægsta tilboðið hljóðaði upp á tæpar 52,9 milljónir króna og er rúmum 10,6 milljónum yfir kostnaðaráætlun verksins.

Fram kemur í bókun framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja að kostnaðaráætlun hafi verið 42.237.000 krónur.

Tilboðin voru eftirfarandi:

  • SA Smíðar ehf. – 52.858.436 kr.
  • Steini og Olli ehf. – 75.493.000 kr.
  • Eykt ehf. – 76.386.580 kr.

Framkvæmda- og hafnarráð samþykkti fyrir sitt leyti að taka tilboði lægstbjóðanda, SA Smíðar ehf., með fyrirvara um samþykki bæjarráðs þar sem tilboðið er yfir fjárhagsáætlun verkefnisins.

Í bókun ráðsins er jafnframt lögð áhersla á að tryggja að þau verkefni sem þegar hafi verið hafin verði kláruð með þeim hætti að sómi sé af framkvæmdum sveitarfélagsins. Málinu hefur verið vísað til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

Nýjustu fréttir

Lægsta tilboð í svið á Vigtartorgi 10,6 milljónum yfir áætlun
Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar
Rauðáta gæti orðið ný atvinnugrein
Lögreglan minnir á mikilvægi umferðaröryggis á Orkumótinu
Fiskibátur vélarvana við Vestmannaeyjar
Orkumótið hefst á morgun
Asbeströr í óreiðu austur á Hrauni
Úti er ævintýri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.