Mugison, saft í brúsa og pönsur á Skansinum

Mugison hefur oft komið fram í Vestmannaeyjum á ferli sínum og ávallt fengið frábærar móttökur. Það er því tilhlökkunarefni að sjá og heyra hann á tónleikum á Skansinum annað kvöld, föstudag.

„Ég kem til Eyja að spila á Skansanum á föstudag klukkan 19.00,“ segir Mugison. „Í sumar er ég að spila á 30 útitónleikum vítt og breitt um landið og auðvitað var algjörlega nauðsynlegt að kíkja út í Eyjar. Nú er komið að því að gera Skansinn að tónleikahöll eitt kvöld.

Uppleggið er að spila úti í náttúrunni á mínum uppáhaldsstöðum og fátt er betra en Skansinn. Heimaklettur í baksýn, saft í brúsa og pönsur með sykri í nesti. Þetta verður geggjað,“ segir Mugison.

Miðar á tónleikana eru til sölu á Tix.is og veðurspá er góð.

Nýjustu fréttir

Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.