Nýtt 36 síðna tölublað Eyjafrétta kom út í morgun. Blaðið er að stórum hluta helgað Þjóðhátíð, fólkinu sem kemur að undirbúningi hennar, hefðunum og sögunum sem gera hátíðina einstaka.
Páll Magnússon er í ítarlegu viðtali þar sem hann ræðir meðal annars stöðu Vestmannaeyja, samgöngurnar, ástina á ÍBV, minningar frá Þjóðhátíð og ævintýrin í Bjarnarey. Hann segir Vestmannaeyjar vera órjúfanlegan hluta af því hver hann er og leggur áherslu á mikilvægi þess að miðla tengslunum við Eyjar áfram til næstu kynslóða.
Guðbjörg Helgadóttir er Eyjamaður mánaðarins. Hún hefur komið að undirbúningi Þjóðhátíðar undanfarin ár og segir þjóðhátíðargenin halda sér gangandi. Þá er rætt við Margréti Rós Ingólfsdóttur, sem stýrir sálgæslu og áfallateymi hátíðarinnar, um öryggi, umhyggju og mikilvægi þess að fólk leiti sér aðstoðar þegar á þarf að halda.
Tónlistin fær gott rými í blaðinu. Birgitta Haukdal segir frá samstarfinu við Herra Hnetusmjör um þjóðhátíðarlagið Flugelda, Ágúst Þór Brynjarsson ræðir það stóra verkefni að leiða brekkusönginn í fyrsta sinn og Doctor Victor segist sjá Þjóðhátíð með nýjum augum eftir að hann flutti til Eyja.
Hvítu tjöldin eru hjarta Þjóðhátíðar og rætt er við nokkrar fjölskyldur um undirbúninginn, matinn, sönginn og minningarnar. Einnig er saga hátíðarinnar rifjuð upp með ljósmyndum Hlyns Ólafssonar, sem fanga stemninguna í smáborginni sem rís í Herjólfsdal og hverfur aftur á örfáum dögum.
Meðal annars efnis er viðtal við Birki Ágústsson, framkvæmdastjóra miðla Símans, sem var valinn á lista yfir 40 öfluga stjórnendur undir fertugu. Fjallað er um mikinn áhuga á iðnnámi við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, rætt við Sigurjón Ingvarsson um mikilvægi þess að gefa ungu fólki tækifæri og Kristján Egilsson segir frá fuglaljósmyndun og draumnum um að gefa út bók með myndum sínum.
Þá er fjallað um indverska knattspyrnustráka sem sóttu Orkumótið, myndlistarsýningu fjögurra listamanna á Goslokahátíð, útskriftarnemendur úr tíunda bekk og áform um 120 herbergja hótel í Hásteinsgryfju.
Tímamót verða jafnframt á ritstjórn Eyjafrétta. Ómar Garðarsson lætur af starfi ritstjóra eftir áratuga starf og Tryggvi Már Sæmundsson tekur við. Ómar hverfur þó ekki frá útgáfunni heldur verður áfram viðloðandi Eyjafréttir og leggur þeim lið eftir þörfum.
Blaðið fer í dreifingu til áskrifenda eftir hádegi. Það er jafnframt aðgengilegt í rafrænni útgáfu hér á vef Eyjafrétta. Einnig er það til sölu í lausasölu í Tvistinum og á Kletti. Þeir sem vilja gerast áskrifendur geta skráð sig hér.