Gleðilega Þjóðhátíð
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja.

Aðsend grein

Íris Róbertsdóttir

Á morgun er setning Þjóðhátíðar. Hátíðin okkar í Herjólfsdal er upplifun sem á sér enga hliðstæðu og það er alltaf jafn gaman að sjá Heimaey bókstaflega fyllast af fólki sem kemur saman til að gleðjast og gleðja aðra.
Við Eyjamenn hefjum undirbúninginn löngu fyrir hátíðina. Margt er í föstum skorðum og sumar hefðir hafa lifað svo lengi að enginn man lengur hver hóf þær innan fjölskyldunnar. Það er einmitt heimafólkið sem gerir þessa hátíð að því sem hún er, einstaka upplifun.

Þjóðhátíðarminningar

Ég á ótal minningar tengdar Þjóðhátíð með mínu fólki. Já, það er mikil vinna að vera á Þjóðhátíð og sinna öllu því sem við heimamenn leggjum af mörkum, en þetta er jafnframt skemmtilegasta „vinna“ sem til er. Sjálf fór ég á mína fyrstu Þjóðhátíð aðeins sjö mánaða gömul og lærði snemma gildi hennar. Þau gildi hef ég reynt að halda á lofti gagnvart mínum börnum. Hátíðin okkar snýst um hefðir og um að þær lifi áfram frá einni kynslóð til þeirrar næstu.

Hefðin og sagan

Setningin, brennan á Fjósakletti, flugeldasýningin, Brekkusöngurinn og blysin eru aðeins hluti af því sem gerir hátíðina okkar í Herjólfsdal ógleymanlega. Það eru mikil forréttindi að fá að upplifa þessa einstöku stemningu ár eftir ár, stemningu sem erfitt er að setja í orð.
Það sem gerir Þjóðhátíðina jafnframt svo sérstaka er sagan. Rætur hennar ná aftur til ársins 1874 þegar efnt var til fyrstu hátíðarinnar. Þjóðhátíð Vestmannaeyja er því ekki aðeins sú stærsta heldur einnig elsta menningarhátíð landsins. Á miðnætti á sunnudagskvöld munu 152 blys, jafn mörg og árin frá fyrstu hátíðinni, lýsa upp brekkurnar og slá rauðum bjarma á þjóðhátíðargesti. Það er sannkallað gæsahúðaraugnablik.

Kynslóðir saman

Það er ómetanlegt hversu margir leggja hönd á plóg við undirbúning Þjóðhátíðar. Það er líka fallegt hvernig fjölskyldur og vinahópar halda í hefðir og skapa nýjar. Þessi samheldni er það sem skapar hið einstaka andrúmsloft sem Eyjamenn og gestir upplifa, stemningu sem hvergi annars staðar er að finna.
Það sýnir styrk okkar Eyjamanna og gesta að standa vörð um þessa dýrmætu hefð og mæta í Dalinn. ÍBV íþróttafélag og Þjóðhátíðarnefnd leggja ómælda vinnu í að viðhalda henni, en það er jafnframt okkar allra að halda henni lifandi. Heimafólkið er grunnurinn að sérkennum hátíðarinnar og því sem gerir hana að einstakri upplifun.

Ég óska Eyjamönnum öllum og gestum okkar gleðilegrar Þjóðhátíðar. Megi helgin færa okkur góðar stundir, samveru og nýjar minningar sem lifa um ókomin ár.

Sjáumst í sólinni í Dalnum.

Nýjustu fréttir

Gleðilega Þjóðhátíð
Búslóðaflutningar leyfðir í Herjólfsdal í dag
Þjóðhátíð í aðalhlutverki í nýjum Eyjafréttum
Hvítu tjöldin farin að setja svip á Dalinn – myndir
ÍBV náði jafntefli gegn toppliði FH með marki í blálokin
Gosarnir á stífum æfingum fyrir Þjóðhátíð
Anton Frans, Morgan Goði og Sigurmundur Gísli hefja leik á EM í Serbíu í dag með u-18
ON sér um rekstur hleðslustöðva en bærinn á áfram innviðina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.