Samfélagið má ekki afskrifa tossana
Boðskapur Sigurjóns er einfaldur: Gefið fólki tækifæri. Það getur skipt sköpum – ekki aðeins fyrir einstaklinginn heldur allt samfélagið.

„Ég var með 1,5 í meðaleinkunn þegar ég kláraði tíunda bekk,“ segir Sigurjón Ingvarsson, byggingastjóri og einn helsti drifkrafturinn að uppbyggingu verknáms við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Frásögn hans er ein margra sem vaki hafa athygli í nýjasta blaði Eyjafrétta.

Sigurjón segir frá lífshlaupi sínu  sinni og litlum áhuga á námi á yngri árum. Hann komst þó inn í Stýrimannaskólann þrátt fyrir slakan námsárangur, varð síðar skipstjóri og stýrimaður, fór í húsasmíði og hefur á undanförnum árum átt stóran þátt í að byggja upp öflugt iðnnám í Vestmannaeyjum. Með samstilltu átaki skóla, atvinnulífs og samfélags tókst að færa m.a. húsasmíða- og múraranám til Eyja og skapa ný tækifæri fyrir ungt fólk.

Í viðtalinu segir Sigurjón að samfélagið sé alltof fljótt að afskrifa þá sem eigi erfitt með hefðbundið bóknám. Hann bendir á að margir sem hafi verið taldir tossar séu í dag öflugir iðnaðarmenn með farsælan starfsferil.

Viðtalið er bæði persónulegt og hressilegt en um leið skýr áminning um að hæfileikar birtast með ólíkum hætti. Boðskapur Sigurjóns er einfaldur: Gefið fólki tækifæri. Það getur skipt sköpum – ekki aðeins fyrir einstaklinginn heldur allt samfélagið.

Nýjustu fréttir

Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Cornelia Hermansson gengur til liðs við ÍBV
Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Tölum saman í FÍV á morgun
Útflutningur eldisafurða kominn í tæpan 51 milljarð
Sigurbergur ráðinn tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Í höfn og á hafi – myndasyrpa
Málþing, súpa og spjall
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.