147 komu á heilsugæsluna og í sjúkraskýlið

Um 95 einstaklingar leituðu á heilsugæsluna í Vestmannaeyjum um Þjóðhátíðarhelgina og 52 í sjúkraskýlið í Herjólfsdal. Heilbrigðisstofnun Suðurlands var með aukinn viðbúnað og heilsugæslan opin allan sólarhringinn. Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum stóð vaktina yfir Þjóðhátíð og tryggði öryggi gesta og íbúa með öflugri mönnun og góðu samstarfi við aðra viðbragðsaðila. Ólíkt venjulegum helgum, þegar […]
Einstakt sjónarspil yfir Vestmannaeyjum eftir viku

Vestmannaeyingar fá tækifæri til að upplifa eitt magnaðasta sjónarspil náttúrunnar miðvikudaginn 12. ágúst, þegar nær almyrkvi á sólu verður sýnilegur yfir Eyjum. Þótt Vestmannaeyjar verði rétt utan þess svæðis þar sem alsólmyrkvi sést verður myrkvinn engu að síður afar áhrifamikill. Tunglið mun hylja um 99,4 prósent af sólarskífunni, þannig að dagsbirtan dofnar verulega og á hámarki […]
Nýja vatnslögnin á leið til Eyja

Lagning nýju vatnslagnarinnar milli Landeyjasands og Vestmannaeyja hófst í gærkvöldi þegar lagningarskipið Seven Navica lét úr höfn í Vestmannaeyjum um klukkan 19.00. Skömmu síðar fór björgunarbáturinn Þór til móts við skipið. Hlutverk áhafnar Þórs er að koma enda leiðslunnar í land og sjá um frágang hennar þegar lagningu lýkur. Þrátt fyrir að ekki hafi enn […]
Birkir meðal öflugustu stjórnenda undir fertugu

Birkir Ágústsson, sonur Iðunnar og Gústa, hefur á undanförnum árum verið í fararbroddi við uppbyggingu Sjónvarps Símans Premium og þróun miðla- og markaðsstarfs Símans. Hann er kvæntur Ásu Guðrúnu og saman eiga þau þrjú börn. Nýverið var Birkir valinn á 40/40 lista Góðra samskipta, þar sem árlega eru heiðraðir 40 stjórnendur undir fertugu sem þykja […]
Samfélagið má ekki afskrifa tossana

„Ég var með 1,5 í meðaleinkunn þegar ég kláraði tíunda bekk,“ segir Sigurjón Ingvarsson, byggingastjóri og einn helsti drifkrafturinn að uppbyggingu verknáms við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Frásögn hans er ein margra sem vaki hafa athygli í nýjasta blaði Eyjafrétta. Sigurjón segir frá lífshlaupi sínu sinni og litlum áhuga á námi á yngri árum. Hann komst […]