Um 95 einstaklingar leituðu á heilsugæsluna í Vestmannaeyjum um Þjóðhátíðarhelgina og 52 í sjúkraskýlið í Herjólfsdal. Heilbrigðisstofnun Suðurlands var með aukinn viðbúnað og heilsugæslan opin allan sólarhringinn.
Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum stóð vaktina yfir Þjóðhátíð og tryggði öryggi gesta og íbúa með öflugri mönnun og góðu samstarfi við aðra viðbragðsaðila.
Ólíkt venjulegum helgum, þegar einn læknir er á bakvakt, var heilsugæslan opin allan sólarhringinn. Mönnunin byggðist á heimafólki, öðru starfsfólki HSU og liðsauka frá Landspítala. Þar á meðal var Hafdís, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítala, sem starfaði í sjúkraskýlinu í Herjólfsdal þriðja árið í röð.
Í Herjólfsdal voru sex sjúkraflutningamenn frá HSU við störf og tveir sjúkrabílar til taks. Röntgenþjónusta og rannsóknarstofa voru á vakt alla helgina.
Öryggisverðir voru í móttöku heilsugæslunnar allan sólarhringinn og starfsfólk eldhúss sá til þess að starfsfólk hefði aðgang að hressingu og heitum mat. Ræstingarfólk hélt jafnframt aðstöðunni hreinni og snyrtilegri þrátt fyrir mikla umferð.
Um helgina komu um 95 einstaklingar á heilsugæsluna og 52 leituðu í sjúkraskýlið. Langflestum sem komu í sjúkraskýlið var sinnt þar og aðeins örfáir þurftu að fara áfram á heilsugæsluna yfir nóttina.

Á hverjum degi fór fram stöðufundur með fulltrúum heilsugæslunnar, sjúkradeildar, lögreglu, sjúkraflutninga, ÍBV, gæslu og sálgæsluteymis. Þar var farið yfir stöðu mála, lærdóm liðins sólarhrings og það sem mætti bæta til að tryggja sem best öryggi og þjónustu.
HSU segir Þjóðhátíð einstakan viðburð sem krefjist mikillar samvinnu og umfangsmikils undirbúnings. Að baki vel heppnaðri helgi liggi fjölmargir fundir, skipulagning og undirbúningur. Tryggja þurfi að nægar birgðir, mannskapur og úrræði séu til staðar enda aldrei hægt að vita fyrirfram hversu mikið álag verði á þjónustuna.
Þórunn Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur í Vestmannaeyjum, var meðal þeirra sem undirbjuggu og héldu utan um starfsemina á heilsugæslunni:
„Það er alltaf sérstök stemning sem fylgir því að vinna á Þjóðhátíð. Flestir eru í góðu skapi og allir leggja sig fram um að gera sitt besta. Við sem erum að vinna erum jafnframt mörg að undirbúa hátíðina með okkar fjölskyldum og mörg sinna einnig öðrum verkefnum fyrir ÍBV yfir helgina. Þegar helgin er að baki eru því flestir orðnir þreyttir, en jafnframt stoltir af góðu samstarfi og vel unnu verki,“ segir Þórunn.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands þakkar starfsfólki, samstarfsaðilum og viðbragðsaðilum fyrir ómetanlegt framlag til Þjóðhátíðar 2026, segir í frétt á vef Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
