Lagning nýju vatnslagnarinnar milli Landeyjasands og Vestmannaeyja hófst í gærkvöldi þegar lagningarskipið Seven Navica lét úr höfn í Vestmannaeyjum um klukkan 19.00. Skömmu síðar fór björgunarbáturinn Þór til móts við skipið. Hlutverk áhafnar Þórs er að koma enda leiðslunnar í land og sjá um frágang hennar þegar lagningu lýkur. Þrátt fyrir að ekki hafi enn tekist að koma leiðslunni í land hefur það ekki tafið framkvæmdina.
„Við höfum ekki náð að koma endanum í land vegna straums en það hefur ekki tafið verkið. Seven Navica slakar út lögninni og setur belgi á hana með vissu millibili þannig að hún flýtur. Straumurinn á að ganga niður og við reiknum með að hefjast handa við að koma endanum í land um klukkan þrjú,“ sagði Gunnlaugur Erlendsson, kafari og skipstjóri á björgunarbátnum Þór, í samtali við Eyjafréttir í hádeginu.
Veðrið er gott, sléttur sjór og aðstæður til lagningarinnar eins hagstæðar og kosið verður. Austurfallið hefur því verið eina hindrunin og búist er við að um leið og dregur úr straumnum verði leiðslunni komið í land á Landeyjasandi.
Nýja vatnslögnin er 12,7 kílómetra löng og hefur verið hönnuð sérstaklega fyrir aðstæður milli lands og Eyja. Hún er stórt skref í að tryggja vatnsöryggi Vestmannaeyja, en nú er aðeins ein af þremur vatnslögnum milli lands og Eyja í nothæfu ástandi. Tvær eldri lagnir, sem eru rúmlega 50 ára gamlar, eru ónýtar.
Takist allt samkvæmt áætlun gæti þessari mikilvægu framkvæmd lokið á næstu dögum og þá verður vatnsöryggi Vestmannaeyja mun meira en verið hefur undanfarin ár.


Seven Navica heldur sínu striki en Þór heldur í hinn endann og bíður færis að koma honum í land.