Einstakt sjónarspil yfir Vestmannaeyjum eftir viku
Tunglið hylur nær alla sólina – Veðrið gæti ráðið úrslitum -  Hvar er hægt að kaupa sólmyrkvagleraugu í Eyjum?
Tunglið mun hylja um 99,4 prósent af sólarskífunni, þannig að dagsbirtan dofnar verulega og á hámarki myrkvans verður birtan líkust rökkri. Mynd NASA.

Vestmannaeyingar fá tækifæri til að upplifa eitt magnaðasta sjónarspil náttúrunnar miðvikudaginn 12. ágúst, þegar nær almyrkvi á sólu verður sýnilegur yfir Eyjum. Þótt Vestmannaeyjar verði rétt utan þess svæðis þar sem alsólmyrkvi sést verður myrkvinn engu að síður afar áhrifamikill. Tunglið mun hylja um 99,4 prósent af sólarskífunni, þannig að dagsbirtan dofnar verulega og á hámarki myrkvans verður birtan líkust rökkri.

Sólmyrkvinn hefst um klukkan 16:49, nær hámarki um 17:50 og lýkur um 18:49. Á þeim tíma má búast við óvenjulegri birtu þar sem skuggar verða skarpari og birtan fær sérstakan blæ. Einnig getur hitinn lækkað lítillega á meðan tunglið skyggir á sólina.

Búast má við að margir innlendir og erlendir ferðamenn leggi leið sína til Íslands til að fylgjast með þessum sjaldgæfa viðburði. Þetta er einn merkasti stjarnfræðiviðburður sem sést hefur frá Íslandi í áratugi og hefur því eðlilega mikið aðdráttarafl.

Veðrið ræður úrslitum

Eins og svo oft áður verður það þó veðrið sem ræður mestu um hvort Vestmannaeyingar fái að njóta sjónarspilsins. Enn er of snemmt að segja til um hvernig viðrar þann 12. ágúst, en langtímaspár benda til þess að hæðarsvæði verði yfir landinu um miðjan mánuð. Gangi það eftir gætu Eyjamenn átt von á hægum vindum, bjartviðri og góðum skilyrðum til að fylgjast með myrkvanum. Langtímaspár eru þó óvissar og endanleg mynd skýrist ekki fyrr en þegar nær dregur.

Mikilvægt er að hafa í huga að aldrei má horfa beint til sólar án viðurkenndra sólmyrkvagleraugna eða annars viðurkennds hlífðarbúnaðar. Það á einnig við þegar aðeins örlítið brot af sólarskífunni er sýnilegt. Spurning hvar er hægt að nálgast gleraugun í Vestmannaeyjum?

Ef veðrið verður hagstætt gætu Vestmannaeyingar átt von á einstakri náttúruupplifun sem verður lengi í minnum höfð.

 

Nýjustu fréttir

Fleiri sóttu um iðnnám en komust að í haust
Myndband sýnir varhugaverðar aðstæður við Ofanleitishamar
Styrkleikarnir snúa aftur í einfaldara formi
Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega við Ofanleitishamar
ESB setur hagsmuni Íslands ekki í fyrsta sæti
Leitað að nýju hundasvæði
Suðurland á mikið undir
Íslenskir diplómatar binda ekki Evrópudómstólinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.