Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Spilið er eitt af kenniletum í Höðfavíkinni.

Gamlar minjar koma óvænt undan sandi í Höfðavíkinni og Brimurð – Nýjar upplýsingar varpa ljósi á sögu spilsins úr Star of the East

Fjaran í Vestmannaeyjum geymir ýmislegt og stundum þarf ekki annað en réttar aðstæður til að gamlar minjar, sem legið hafa faldar undir sandi og grjóti árum eða áratugum saman, komi skyndilega í ljós. Það hefur einmitt gerst á síðustu dögum, bæði í Höfðavíkinni og í Brimurð syðst á Heimaey.

Pétur Steingrímsson vakti athygli á því á Facebook-síðunni Gamlar ljósmyndir frá Vestmannaeyjum að óvenjulegar timburfjalir væru komnar í ljós undir hinu þekkta spili úr togaranum Star of the East frá Aberdeen í Höfðavíkinni.

Pétur segist hafa gengið fram hjá spilinu mörg hundruð sinnum en aldrei áður tekið eftir fjölunum.

„Í dag er það í fyrsta skiptið sem ég tek eftir þessum fjölum gægjast upp úr sandinum þarna. Þetta eru þykkar og miklar fjalir og liggja þær undir spilinu,“ skrifaði Pétur og velti því upp hvort þær gætu verið úr togaranum sjálfum, jafnvel úr dekkinu sem spilið stóð á, eða hvort timbrið hefði verið notað þegar spilið var komið í land.

Færslan vakti athygli og sitt sýndist hverjum. Nokkrir töldu líklegast að um væri að ræða timbur úr dekki togarans og að spilið hefði upphaflega verið fest við það. Bent var á að á eldri togurum hefði trédekk gjarnan verið lagt ofan á stáldekkið og því ekki ólíklegt að þarna væri hluti af upprunalegu dekki skipsins.

Aðrir veltu fyrir sér hvort timbrið hefði verið notað til að fleyta eða draga hið þunga spil í land. Fram kom að Þórhallur Á. Guðjónsson hefði verið á ýtu og dró spilið að landi og oft sagt frá því verkefni.

 

 

Hér má sjá fjalirnar undir spilinu sem sennilega ery dekkfjalir úr togaranum Star of the East.

 

Spilið átti að draga báta upp í slipp

 Svavar Steingrímsson hefur nú bætt við söguna upplýsingum sem hann segist hafa fengið frá góðum heimildarmanni. Samkvæmt þeim var það Gunnar Marel Jónsson, forstöðumaður Dráttarbrautar Vestmannaeyja frá 1925 til 1958, sem greiddi kostnaðinn við að bjarga spilinu úr Star of the East.

Hugmyndin var að nýta spilið í Dráttarbrautinni til að draga báta upp í slipp. Þegar búið var að ná því úr togaranum og koma því upp í fjöruna kom hins vegar í ljós að það hentaði ekki til verksins.

Þar með var ekkert frekar að gert og spilið dagaði uppi í Höfðavíkinni. Þar hefur það staðið síðan og með tímanum orðið að hálfgerðu kennileiti – og minnisvarða um horfna tíma í útgerðarsögunni.

En ráðgátan um fjalirnar er enn óleyst. Eru þær hluti af dekki Star of the East, komu þær með spilinu úr togaranum eða voru þær notaðar við björgun þess og flutning í land?

Það sem gerir málið enn forvitnilegra er hversu skyndilega fjalirnar komu í ljós. Ólafur Þór Gylfason tók myndir af spilinu 2. ágúst og segir að þá hafi engar fjalir verið sjáanlegar. Aðrir sem þekkja staðinn vel segjast heldur aldrei hafa séð þær áður. Inga Jóna Hilmisdóttir rifjar meðal annars upp að hafa tekið myndir af spilinu um síðustu aldamót án þess að sjá nokkurt timbur.

Á örfáum dögum virðist sandurinn því hafa færst nægilega mikið til að afhjúpa það sem áður var hulið.

 

Vélin úr Búrfelli minnir á mikla sögu.

 

Búrfell minnir líka á sig

Höfðavíkin er ekki ein um að skila gömlum minjum úr sandinum. Í Brimurð var vél úr Búrfelli VE einnig óvenju sýnileg á dögunum. Búrfell strandaði þar árið 1958 og hefur vélin legið í fjörunni síðan, misjafnlega sýnileg eftir því hvernig sjórinn færir til sand, möl og grjót.

Strand Búrfells á sér jafnframt sterka tengingu við fjölskyldusögu Eyjamanna. Ólöf Jóna Þórarinsdóttir, Óla í Sparisjóðnum rifjaði upp að afi hennar, Jón Ben, ásamt Dóra Ben og föður hennar, Lalla á Sæfaxa, hefðu bjargast við illan leik með því að synda í land þegar Búrfell strandaði. Sjálf kom hún í heiminn aðeins nokkrum dögum síðar og segist þakklát fyrir að hafa fengið að njóta þeirra allra.

Þannig heldur fjaran áfram að segja sögur. Einn daginn er þar ekkert að sjá nema sand og grjót en þann næsta gægjast fram fjalir sem kunna að vera úr gömlum togara eða vél úr skipi sem strandaði fyrir tæpum sjö áratugum.

Og hver veit hvað kemur næst upp úr sandinum?

 

Nýjustu fréttir

Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.