Ísfisktogarinn Bergey VE kom til Grindavíkur í morgun með 65 tonn af karfa. Á vef Síldarvinnslunnar er rætt við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra og er hann spurður hvernig veiðiferðin hafa gengið.
„Við vorum í eina tvo sólarhringa að veiðum í túrnum og það gekk vel fyrri sólarhringinn en ekkert sérstaklega vel þann síðari. Það er alltaf fúlt þegar veiðin dettur svona niður. Þegar við héldum til veiða var skítabræla en síðan lagaðist veðrið fljótlega. Við vorum að veiðum vítt og breitt í Skerjadýpinu og karfinn sem þarna fékkst var hinn fínasti. Að löndun lokinni í Grindavík verður haldið til Eyja og þar verður skipt á einhverjum mannskap. Síðan geri ég ráð fyrir að farið verði austur í næsta túr,” sagði Ragnar Waage.