ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Viktorija Zaicikova í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

ÍBV og Þróttur Reykjavík mættust í 16. umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í kvöld þar sem gestirnir fóru með 1-2 sigur af hólmi. 

Þróttur var mikið betri liðið í fyrri hálfleik og voru sanngjarnt 0-2 yfir í hálfleik. Björg Gunnlaugsdóttir skoraði fyrra mark Þróttar eftir um 20 mínútna leik þegar hún skoraði af stuttu færi. Sæunn Björnsdóttir tvöfaldaði forystu gestanna nokkrum mínútum síðar með marki beint úr hornspyrnu.

Síðari hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum þar sem gestirnir voru áfram með yfirhöndina. ÍBV sótti aðeins í sig veðrið þegar líða tók á leikinn og minnkuðu muninn þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Það var hin unga og efnilega Milena Mihaela Patru sem gerði það og var þetta jafnframt hennar fyrsta mark fyrir ÍBV í efstu deild. Markið kom eftir klafs inn á teignum og var hún fyrst til að átta sig og stýrði boltanum í hornið. Eyjakonur náðu ekki að sækja jöfnunarmark og þurftu því að sætta sig við 1-2 tap á heimavelli. 

ÍBV er eftir 16 umferðir í fjórða sæti deildarinnar með 24 stig. Með sigrinum kom Þróttur sér upp í sjötta sæti og eru með 21 stig.

Úrslit úr leikjum kvöldsins

FH 0 – 1 Víkingur R. 

Þór/KA 0 – 1 Valur

ÍBV 1 – 2 Þróttur R.

0-1 Björg Gunnlaugsdóttir (’21 )

0-2 Sæunn Björnsdóttir (’28 )

1-2 Milena Mihaela Patru (’80 )

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.