Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Frá síðustu leiktíð. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Kvennalið ÍBV í handbolta vann alla þrjá leiki sína á Ragnarsmótinu á Selfossi í vikunni. Mótið er mikilvægur liður í undirbúningi liðsins fyrir komandi keppnistímabil í Olís deildinni.

ÍBV byrjaði mótið af krafti og vann stórsigur á Víkingi Reykjavík, 49-29.

Mörk ÍBV: Amelía Dís Einarsdóttir 9, Sandra Erlingsdóttir 9, Andrea Jacobsen 8, Birna Berg Haraldsdóttir 6, Ásta Björt Júlíusdóttir 5, Klara Káradóttir 5, Lilja Kristín Svansdóttir 3, Birna Dís Sigurðardóttir 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 1 og Margrét Castillo 1.

Í næsta leik hafði ÍBV betur gegn heimakonum í Selfossi eftir spennandi leik, 35-36.

Mörk ÍBV: Andrea Jacobsen 10, Birna Berg Haraldsdóttir 8, Sandra Erlingsdóttir 8, Klara Káradóttir 5, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Lilja Kristín Svansdóttir 1 og Margrét Castillo 1.

Í lokaleik mótsins, sem fram fór í gær, mættu stelpurnar Þór/KA og fögnuðu 28-23 sigri.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 9, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Klara Káradóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Birna Berg Haraldsdóttir 2, Lilja Kristín Svansdóttir 2, Agnes Lilja Styrmisdóttir 1, Andrea Jacobsen 1, Ólöf María Stefánsdóttir 1 og Sóldís Sif Kjartansdóttir 1.

Næst á dagskrá hjá liðinu er Olís deildin, sem hefst í byrjun september.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.