Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmargir pysjubjörgunarmenn voru vestur á Hamri í dag að sleppa pysjum þegar ljósmyndari Eyjafrétta leit þar við.

Skráðum pysjum í Vestmannaeyjum fjölgar nú hratt en þær eru komnar yfir eitt þúsund það sem af er pysjutímabilinu. Samkvæmt upplýsingum á lundi.is hafa alls 1.036 pysjur verið skráðar, þegar þessi frétt er skrifuð.

Pysjutímabilið er því komið á fullt skrið og víða má sjá björgunarfólk á ferðinni um bæinn þegar skyggja tekur. Skráning pysjanna veitir mikilvægar upplýsingar um fjölda þeirra og ástand og eru pysjuleitendur hvattir til að skrá allar pysjur sem þeir finna á lundi.is.

Í nýlegum pistli Pysjueftirlitsins var síðasta tímabil rifjað upp, en það var það lengsta frá því eftirlitið hóf starfsemi fyrir 23 árum. Fyrsta pysjan árið 2025 fannst 29. júlí og sú síðasta 2. október. Tímabilið stóð því yfir í rúmar níu vikur, en meðallengd pysjutímabilsins er 38 dagar.

Hámarkinu var náð 27. ágúst í fyrra þegar 283 pysjur voru skráðar á einum degi. Alls voru 3.283 pysjur skráðar á lundi.is yfir tímabilið, sem var nærri spá starfsmanna Náttúrustofu Suðurlands um 3.000 pysjur.

Af þeim voru 1.045 pysjur vigtaðar og reyndist meðalþyngdin 243 grömm, sem var í lægri kantinum. Til samanburðar var meðalþyngdin 308 grömm árið 2024, en meðalþyngd pysja frá upphafi mælinga er 264,5 grömm.

Að mati Pysjueftirlitsins bentu fáar og léttar pysjur, ásamt löngu pysjutímabili, til þess að skortur hefði verið á góðu æti fyrir pysjurnar. Litlar, dúnaðar, slasaðar og olíublautar pysjur fengu umönnun hjá Sea Life Trust. Alls þurfti að hreinsa 30 olíublautar pysjur á síðasta tímabili.

Nýjustu fréttir

Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.