Fjölmennt var á opnum fundi Áfram Ísland sem haldinn var í Golfskálanum í Vestmannaeyjum í hádeginu í dag. Fundurinn var haldinn í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fer laugardaginn 29. ágúst.
Á fundinum fluttu erindi Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, og Sigurður Arnar Magnússon, starfsmaður Laxeyjar og leikmaður ÍBV.
Fundarstjóri var Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja. Áfram Ísland er vettvangur fólks sem velur íslenska framtíð á eigin forsendum í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta var á staðnum og fylgdist með fundinum í gegnum linsuna. Hægt er að smella á myndirnar til að opna þær stærri.