Raunverulegt sjálfstæði
Þingmaður Viðreisnar
Sandra Sigurðardóttir

Aðsend grein

Sandra Sigurðardóttir

Íslenskt samfélag hefur um aldir verið mótað af fákeppni og stéttaskiptingu. Jarðir og auðlindir á höndum kirkjunnar, örfárra bænda og höfðingja. Alþýða fólks bjó við erfið kjör og mjög takmörkuð tækifæri til að bæta hag sinn og sinna.

Gamla valdið í nýjum búningi

Stórir sigrar hafa unnist. Sjálfstæðisbaráttan, verkalýðshreyfingin og uppbygging velferðarkerfisins færðu aukin tækifæri til almennings. En ef rýnt er í uppbyggingu íslensks samfélags má sjá að rauði þráðurinn hefur aldrei almennilega slitnað. Eignir, fjármunir, sjávarútvegsauðlindin og fjármálakerfið eru enn í höndum fámenns hóps. Hið efnahagslega vald yfir samfélaginu okkar hefur í raun færst úr höndum stórbænda fortíðarinnar yfir til fárra fjárfesta, útgerðarinnar og hagsmunagæslumanna.

Óttinn við staðreyndir og gagnsæi

Í þessu samhengi er lærdómsríkt að fylgjast með málflutningi þeirra sem berjast gegn ESB-viðræðum. Hvers vegna gætir svona mikils ótta við að ganga til viðræðna, ná fram samningi, fá staðreyndir á borðið og sjá hvaða tækifæri felast í honum?

Með því að fara í gegnum ferlið, klára viðræður og fá aðildarsamning á borðið fær íslensk þjóð í tækifæri til að reyna á breytingar sem gætu opnað samfélagið enn frekar, aukið samkeppni, lækkað framfærslukostnað og bætt hag almennings. Hið efnahagslega vald óttast gagnsæið; þeir vilja ekki að þjóðin fái tækifæri til að skoða samninginn sjálf og taki upplýsta ákvörðun. Ala á ótta og óvissu til að tryggja að óbreytt ástand ríki áfram hér á landi.

Hvað er raunverulegt sjálfstæði?

Sumir halda því fram að verið sé að fórna sjálfstæði þjóðarinnar. En raunverulegt sjálfstæði snýst ekki um að verja hagsmuni fárra útvalinna. Raunverulegt sjálfstæði snýst um að þjóðin fái að vita, velja og hafna á eigin forsendum út frá hagsmunum heildarinnar.

Með því að kjósa JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst tryggjum við að ferlinu sé framhaldið, gengið verið að samningaborðinu og almenningur fengi lokaorðið. Það er kominn tími til að landsmenn allir ákveði hvað er best fyrir þjóðina og framtíðar kynslóðir. Sameinumst um það að velja upplýsingar og gagnsæi – segjum JÁ þann 29. ágúst.

 

Sandra Sigurðardóttir
Þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Raunverulegt sjálfstæði
Sjávarútvegurinn er tilvistarspurning fyrir Ísland
Karlalið ÍBV sigurvegari á Ragnarsmótinu á Selfossi
Upptökumannvirki Vestmannaeyjahafnar lokað tímabundið
Mikilvæg stig í húfi hjá Eyjamönnum í Keflavík
Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.