Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega við Ofanleitishamar
Björgunarfólki er bent á að standa fyrir aftan vegginn þegar sleppt er.

Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar til pysjubjörgunarfólks að fara að öllu með gát, sérstaklega þegar lundapysjum er sleppt við Ofanleitishamar.

Nú stendur pysjubjörgun sem hæst og fjöldi fólks leggur leið sína að Hamrinum til þess að sleppa pysjum. Lögreglu hafa borist ábendingar um að fólk standi fyrir utan hlaðna vegginn á svæðinu og að litlu hafi mátt muna að illa færi í að minnsta kosti tveimur tilvikum.

Í þeim tilfellum hafi börn misst pysju frá sér og reynt að ná henni aftur, en við það farið hættulega nærri hárri bjargsbrúninni.

Lögreglan hvetur pysjubjörgunarfólk því eindregið til að standa fyrir aftan vegginn þegar pysjum er sleppt.

„Pysjubjörgun skapar skemmtilegar og góðar minningar fyrir fjölskylduna og forsenda þess er að allir komi heilir heim,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.