Hauststarfið er farið af stað hjá Fimleikafélaginu Rán og ýmislegt spennandi er fram undan á næstu mánuðum.
Um helgina fær félagið Kidda, landsliðsþjálfara, í heimsókn til Vestmannaeyja. Hann mun fara yfir reglur með þjálfurum og iðkendum auk þess að stýra æfingum hjá stelpunum.
Að sögn Sigurbjargar, fimleikaþjálfara hjá Rán, er undirbúningur hafinn fyrir fimleikamót sem fram fer í nóvember. Elstu stelpurnar hafa fengið nýjan dans og er hann nú að verða tilbúinn.
Í framhaldi af því tekur við undirbúningur fyrir hina árlegu jólasýningu félagsins. Það er því ljóst að fram undan er annasamt og spennandi haust hjá fimleikafélaginu.
Hér má sjá æfingatöflu félagsins fyrir haustönn 2026.
