Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Þrír stórmeistarar í hópi rúmlega 30 keppenda
Þekkingarsetur Vestmannaeyja verður vettvangur afmælismóta Taflfélags Vestmannaeyja þegar félagið fagnar 100 ára afmæli sínu.

Á morgun, laugardag verður 100 ára afmælisatskákmót Taflfélags Vestmannaeyja haldið á opna svæðinu í Þekkingarsetri Vestmannaeyja að Ægisgötu 2, 2. hæð.

Mótið stendur frá kl. 12.00 til 18.00. Tímamörk eru 15 mínútur á skák að viðbættum fimm sekúndum fyrir hvern leik.

Rúmlega 30 keppendur víðs vegar að hafa skráð sig til leiks. Í hópnum eru þrír stórmeistarar auk fjölbreytts hóps skákmanna, en nokkrir keppenda bera alþjóðlega titla.

Hraðskákmót á sunnudag

Sunnudaginn 30. ágúst verður 100 ára afmælishraðskákmót félagsins haldið á sama stað frá kl. 13.00 til 16.00. Tímamörk eru fimm mínútur á skák að viðbættum þremur sekúndum fyrir hvern leik. Um 25 keppendur eru skráðir til leiks, þar á meðal stórmeistararnir þrír.

Skákstjóri beggja móta verður skákmeistarinn Ingvar Þór Jóhannesson, sem er ættaður frá Kirkjubæ í Vestmannaeyjum. Bæði mótin verða reiknuð til alþjóðlegra stiga. Ekkert þátttökugjald er á mótin og enn er opið fyrir skráningu á skak.is. Nánari upplýsingar eru einnig veittar í síma 822-0351.

Áhorfendur eru velkomnir að fylgjast með báðum mótunum. Nánari upplýsingar um mótin má finna í 100 ára afmælisblaði Taflfélags Vestmannaeyja, sem dreift er í Vestmannaeyjum í dag. Blaðið er jafnframt öllum aðgengilegt í opinni vefútgáfu hér á vef Eyjafrétta.

Afmælis- og ritnefnd skipa Arnar Sigurmundsson, Karl Gauti Hjaltason og Hallgrímur Steinsson. Sæþór Vídó annaðist umbrot blaðsins, Landsprent prentaði og Eyjadreifing sá um dreifingu þess í Vestmannaeyjum.

 

Frétt frá Taflfélagi Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.