Djúpur deildarmyrkvi varð á tungli aðfaranótt föstudagsins 28. ágúst og sást vel frá Eyjum.
Myrkvinn hófst skömmu fyrir klukkan hálf tvö um nóttina og náði hámarki klukkan 4.12. Þá var um 93% af þvermáli tunglsins innan alskugga jarðar og aðeins lítill hluti þess lýstur beint af sólinni. Tunglið tók því á sig dökkan og rauðleitan blæ.
Tunglmyrkvi verður þegar jörðin gengur á milli sólar og tungls og varpar skugga sínum á tunglið. Að þessu sinni var um deildarmyrkva að ræða þar sem tunglið gekk ekki að fullu inn í alskugga jarðar.
Ljósmyndari Eyjafrétta, Óskar Pétur Friðriksson, var á vappi með myndavélina og fangaði myrkvann yfir Vestmannaeyjum.
