Styrkleikarnir í Herjólfsdal í dag
Frá Styrkleikunum í Herjólfsdal í fyrra. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson.

Styrkleikarnir fara fram í Herjólfsdal í dag, laugardaginn 29. ágúst, frá klukkan 12 til 20. Allir eru velkomnir en viðburðurinn er táknræn áminning um mikilvægi þess að sýna þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning og samstöðu.

Þátttakendur ganga fyrirfram ákveðinn hring í dalnum, hver á sínum hraða. Fjölskyldur, vinahópar, vinnufélagar, fyrirtæki og félagasamtök eru hvött til að mæta og taka þátt í þann tíma sem þeim hentar.

Fjölskylduskemmtun síðdegis

Fjölskylduskemmtun verður haldin milli klukkan 15 og 16. Þar koma Una og Sara fram, trúbadorinn Aron Daði tekur lagið og einnig þeir Hákon og Andri Magg. Þá er stefnt að því að hafa hoppukastala fyrir yngri kynslóðina og bjóða gestum upp á eitthvað í gogginn.

Lokahringur og ljósastund

Klukkan 20 sameinast þátttakendur í lokahring Styrkleikanna. Að honum loknum verður áhrifamikil ljósastund þar sem kertum verður fleytt á tjörninni. Þar verður hugsað til þeirra sem greinst hafa með krabbamein, aðstandenda þeirra og þeirra sem hafa fallið frá.

Fólk getur mætt á svæðið án skráningar. Eina sem þarf að gera er að reima á sig skóna og mæta. Saman erum við sterkari.

Nýjustu fréttir

Kjördagur í Vestmannaeyjum – 241 höfðu kosið klukkan 11
Styrkleikarnir í Herjólfsdal í dag
Á bak við tjöldin hjá Laxey í Viðlagafjöru
Djúpur tunglmyrkvi yfir Vestmannaeyjum
Gríðarlega mikilvæg stig í húfi á Hásteinsvelli
Eyjakonur sækja toppliðið heim
Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.