Kjördagur í Vestmannaeyjum – 241 höfðu kosið klukkan 11
Frá kjörfundi í Barnaskólanum í Vestmannaeyjum í morgun. Opið er á kjörstað til klukkan 22 í kvöld. Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson.

Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar hófst í Barnaskólanum í Vestmannaeyjum í morgun. Kjörstaður verður opinn til klukkan 22 í kvöld. Alls eru 3.170 manns á kjörskrá í Vestmannaeyjum. Klukkan 11 höfðu 241 greitt atkvæði á kjörstað, eða 7,6% þeirra sem eru á kjörskrá.

Kjörsókn á kjörstað var nokkru meiri en á sama tíma í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Þá höfðu 154 greitt atkvæði klukkan 11, eða 4,4% kjörskrár. Munurinn er 87 kjósendur og 3,2 prósentustig.

Alls hafa 828 utankjörfundaratkvæði borist vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar, sem jafngildir 26,1% kjörskrár. Í bæjarstjórnarkosningunum í vor voru utankjörfundaratkvæðin 702, eða 19,8% kjörskrár. Þau eru því 126 fleiri nú og hlutfallið 6,3 prósentustigum hærra. Utankjörfundaratkvæðin verða meðtalin í lokatölum.

Á kjörskrá í bæjarstjórnarkosningunum voru 3.538 manns, samanborið við 3.170 nú. Munurinn skýrist einkum af erlendum ríkisborgurum og Íslendingum búsettum erlendis sem höfðu kosningarétt í sveitarstjórnarkosningunum en ekki í þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við á kjörstað í morgun og tók meðfylgjandi myndir.

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.