Fleiri utankjörfundaratkvæði en í vor
Kosið er um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið
Frá kjörfundi í Barnaskólanum í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson.

Kjörsókn á kjörstað í Vestmannaeyjum var komin í 47,1% klukkan 18 í dag. Þá höfðu 1.494 greitt atkvæði í Barnaskólanum, 728 í fyrri kjördeild og 766 í þeirri síðari. Á sama tíma í bæjarstjórnarkosningunum í vor höfðu 1.696 kosið, eða 47,9% kjörskrár. Hlutfallsleg kjörsókn á kjörstað er því 0,8 prósentustigum minni nú.

Fram komin utankjörfundaratkvæði eru 839, sem jafngildir 26,5% kjörskrár. Í bæjarstjórnarkosningunum í vor voru þau 702, eða 19,8%. Utankjörfundaratkvæðin eru því 137 fleiri nú og hlutfall þeirra 6,7 prósentustigum hærra. Utankjörfundaratkvæðin verða meðtalin í lokatölum.

Alls eru 3.170 manns á kjörskrá í þjóðaratkvæðagreiðslunni, samanborið við 3.538 í bæjarstjórnarkosningunum. Munurinn skýrist einkum af erlendum ríkisborgurum og Íslendingum búsettum erlendis sem höfðu kosningarétt í sveitarstjórnarkosningunum en ekki í þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Kjörstaður í Barnaskólanum verður opinn til klukkan 22 í kvöld.

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.